Ferill 826. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1271  —  826. mál.




Fyrirspurn


til matvælaráðherra um villidýralög og sjávarspendýr.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


    Mun ráðherra leggja til að málefni sjávarspendýra verði færð undir lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með því frumvarpi sem samkvæmt svari umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (þskj. 1224, 696. mál) er gert ráð fyrir að verði á þingmálaskrá næsta vetrar?


Skriflegt svar óskast.