Ferill 829. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1275  —  829. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um skýrslubeiðni.

Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.


    Hvernig miðar vinnu ráðuneytisins vegna skýrslubeiðni um áhrif heimilisofbeldis við úrskurð um umgengni sem samþykkt var á Alþingi þann 19. október 2022 en var áður flutt á 152. löggjafarþingi? Verður skýrslunni skilað fyrir 1. júní 2023 eins og mælt er fyrir um í beiðninni?


Skriflegt svar óskast.