Ferill 839. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1299  —  839. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um kulnun.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Er til læknisfræðileg greining á kulnun? Ef svo er, hver eru greiningarskilmerki kulnunar?
     2.      Hver er tíðni læknisfræðilegrar greiningar á kulnun og hvernig hefur hún þróast undanfarin ár?
     3.      Hvert er umfang tilvísana og vottorða þar sem kulnun er tilgreind sem ástæða?


Skriflegt svar óskast.