Ferill 865. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1357  —  865. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um Safnahúsið á Sauðárkróki.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.


     1.      Hvað líður endurbótum og viðbyggingu við Safnahúsið á Sauðárkróki sem samkvæmt viljayfirlýsingu um samstarf um fjármögnun og undirbúning menningarhúss í Skagafirði er mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði í maí 2018 átti m.a. að miða að því að bæta aðstöðu listsýninga og sviðslista? Hefur verkefnið verið fjármagnað?
     2.      Hvenær býst ráðherra við að hægt verði að hefjast handa við ráðgerða uppbyggingu?


Skriflegt svar óskast.