Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1835, 153. löggjafarþing 144. mál: skipulagslög (uppbygging innviða).
Lög nr. 35 27. maí 2023.

Lög um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
  1. Við bætast þrír nýir töluliðir, í réttri stafrófsröð, svohljóðandi:
    1. Flutningskerfi raforku: Raflínur og mannvirki þeim tengd sem eru nauðsynleg til að flytja raforku frá virkjunum til stórnotenda og til dreifiveitna, sbr. og nánari skilgreiningu á flutningskerfi í raforkulögum.
    2. Raflínunefnd: Stjórnsýslunefnd skipuð af ráðherra til að annast gerð raflínuskipulags, veita framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku sem byggjast á samþykktri kerfisáætlun og hafa eftirlit með þeim framkvæmdum og framkvæmd raflínuskipulagsins.
    3. Raflínuskipulag: Sérstök skipulagsáætlun fyrir flutningskerfi raforku sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga og er unnin og samþykkt af raflínunefnd.
  2. Við 19. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Raflínuskipulag er skipulagsáætlun sem unnin er og samþykkt af raflínunefnd.


2. gr.

     Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
     Raflínunefndir annast gerð raflínuskipulags fyrir framkvæmdir í flutningskerfi raforku sem byggjast á samþykktri kerfisáætlun. Þær fjalla um leyfisumsóknir vegna framkvæmda sem byggjast á skipulaginu, veita framkvæmdaleyfi vegna þeirra og hafa eftirlit með framkvæmd raflínuskipulagsins og þeim framkvæmdum sem nefndirnar veita leyfi fyrir.

3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „laga um mat á umhverfisáhrifum“ í i-lið kemur: laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
  2. Við bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
    1. að vera raflínunefndum til ráðgjafar og annast gerð raflínuskipulags í þeirra umboði,
    2. að starfrækja landfræðilega gagna- og samráðsgátt, sbr. 4. mgr. 46. gr.


4. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
  1. Við 3. mgr. bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Skipulagsfulltrúi annast, í umboði raflínunefndar, eftirlit með framkvæmdum í flutningskerfi raforku í sveitarfélaginu sem nefndin hefur veitt framkvæmdaleyfi fyrir. Kveðið skal á um hlutverk skipulagsfulltrúa, greiðslu kostnaðar og nánara fyrirkomulag eftirlitsins með framkvæmdum í flutningskerfi raforku í samstarfssamningi raflínunefndarinnar og viðkomandi sveitarstjórnar. Kostnaður við slíkt eftirlit skal greiddur af leyfishafa sem hluti framkvæmdaleyfisgjalds, sbr. 20. gr.
  2. Í stað tilvísunarinnar „9. mgr.“ í 8. mgr. kemur: 10. mgr.

5. gr.

     Á eftir 9. gr. laganna kemur ný grein, 9. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Raflínunefnd.
     Ráðherra er heimilt, að beiðni aðila sem ber ábyrgð á framkvæmd í flutningskerfi raforku eða að beiðni sveitarfélags, að skipa sérstaka raflínunefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa, kynna og afgreiða raflínuskipulag fyrir framkvæmd í flutningskerfi raforku sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga og afgreiða umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir henni.
     Beiðni framkvæmdaraðila eða sveitarfélags um skipun raflínunefndar skv. 1. mgr. skal sett fram áður en samþykkt hefur verið á fundi a.m.k. einnar sveitarstjórnar að auglýsa skipulagstillögu á grundvelli 31. gr. Í beiðninni skal koma fram greinargóð lýsing á fyrirhugaðri framkvæmd og upplýsingar um innan hvaða sveitarfélaga framkvæmdin er áformuð.
     Í raflínunefnd skulu eiga sæti einn fulltrúi hvers sveitarfélags sem viðkomandi framkvæmd á að ná til auk fulltrúa ráðherra sem fer með orkumál og fulltrúa ráðherra sem fer með skipulagsmál. Sá síðastnefndi skal vera formaður nefndarinnar. Samþykki meiri hluta nefndar þarf til að afgreiða einstök mál, að því undanskildu að einróma samþykki þarf vegna tillögu að raflínuskipulagi, sbr. 3. mgr. 11. gr. d. Falli atkvæði jafnt skal slíkum ágreiningi vísað til ráðherra, sbr. 4. mgr. 11. gr. d. Skipan nefndarinnar skal gilda þar til framkvæmd er lokið. Sveitarstjórnum er heimilt að afloknum sveitarstjórnarkosningum að tilnefna nýjan fulltrúa sinn í nefndina.

6. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 10. gr. laganna:
  1. Á eftir orðinu „Sveitarfélög“ í 1. málsl. kemur: og raflínunefndir.
  2. Á eftir orðunum „Telji sveitarstjórn“ í 2. málsl. kemur: eða raflínunefnd.


7. gr.

     Á eftir 11. gr. laganna koma fimm nýjar greinar, 11. gr. a – 11. gr. e, svohljóðandi:
     
     a. (11. gr. a.)
Raflínuskipulag.
     Raflínuskipulag er skipulagsáætlun sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga og markar stefnu fyrir tiltekna framkvæmd í flutningskerfi raforku sem byggist á samþykktri kerfisáætlun.
     Raflínuskipulag skal sett fram í skipulagsgreinargerð og á skipulagsuppdrætti. Í greinargerð raflínuskipulags er forsendum þess lýst og samræmi þess við aðra stefnumótun stjórnvalda sem nær til viðkomandi framkvæmdar. Um gerð og framsetningu raflínuskipulags gilda að öðru leyti ákvæði 12. gr. og skipulagsreglugerðar.
     Við gerð raflínuskipulags skal taka mið af landsskipulagsstefnu. Við gerð skipulagsins skal einnig taka mið af ákvæðum raforkulaga, gildandi stefnu stjórnvalda um flutningskerfi raforku og samþykktri kerfisáætlun.
     Um breytingu á raflínuskipulagi fer eins og um nýtt raflínuskipulag væri að ræða. Ekki er þó skylt að taka saman lýsingu skv. 1. mgr. 11. gr. c.
     
     b. (11. gr. b.)
Ábyrgð á gerð og afgreiðslu raflínuskipulags.
     Raflínunefnd ber ábyrgð á undirbúningi, kynningu og afgreiðslu raflínuskipulags vegna tiltekinna framkvæmda í flutningskerfi raforku, í samræmi við skipunarbréf ráðherra.
     Skipulagsstofnun veitir raflínunefnd ráðgjöf og annast gerð raflínuskipulags í umboði hennar og samkvæmt þeirri málsmeðferð sem kveðið er á um í lögum þessum. Skipulagsstofnun leggur nefndinni til aðstöðu og annast rekstur vefs fyrir kynningu skipulagsins og umhverfismats.
     Raflínunefnd tekur raflínuskipulag til afgreiðslu að fenginni afstöðu hlutaðeigandi sveitarstjórna eða að lokinni málsmeðferð skv. 4. mgr. 11. gr. d og sendir samþykkt raflínuskipulag til staðfestingar ráðherra.
     
     c. (11. gr. c.)
Gerð raflínuskipulags, kynning og samráð.
     Þegar vinna við gerð tillögu að raflínuskipulagi hefst tekur raflínunefnd saman lýsingu á skipulagsverkefninu þar sem fram kemur hvaða áherslur verði við skipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur, valkosti, fyrirliggjandi stefnu stjórnvalda og fyrirhugað skipulagsferli, svo sem um kynningu og samráð við skipulagsgerðina gagnvart stjórnvöldum, almenningi og öðrum hagsmunaaðilum og hvernig staðið verður að umhverfismati skipulagsáætlunar. Lýsingin skal hljóta samþykki raflínunefndar áður en hún er send til umsagnar og kynnt. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá hlutaðeigandi sveitarfélögum og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.
     Tillaga að raflínuskipulagi skal gerð og kynnt ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við 14. og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, þar sem gefin er lýsing og mat á valkostum sem raflínunefnd hafði til skoðunar við undirbúning raflínuskipulags.
     Raflínunefnd auglýsir tillögu að raflínuskipulagi og fer um auglýsinguna skv. 31. gr. Þá skal tillagan send til umsagnar hjá hlutaðeigandi sveitarfélögum og umsagnaraðilum.
     
     d. (11. gr. d.)
Afgreiðsla og gildistaka raflínuskipulags.
     Þegar frestur til athugasemda er liðinn skal raflínunefnd fjalla um tillögu að raflínuskipulagi á nýjan leik. Við afgreiðslu tillögunnar skal hafa hliðsjón af umhverfismatsskýrslu og athugasemdum sem borist hafa við tillöguna og umhverfismatsskýrslu. Í þeirri umfjöllun skal taka afstöðu til athugasemda sem borist hafa og þess hvort gera skuli breytingar á tillögunni. Ákveði nefndin að breyta tillögunni í grundvallaratriðum skal hin breytta tillaga auglýst á nýjan leik skv. 3. mgr. 11. gr. c og 31. gr.
     Endanleg tillaga raflínunefndar ásamt athugasemdum og umsögn nefndarinnar um þær skal send hlutaðeigandi sveitarstjórnum til umsagnar. Afstaða sveitarstjórnar til tillögunnar skal send raflínunefnd innan fjögurra vikna frá því að sveitarstjórn barst tillagan. Sé sveitarstjórn mótfallin tillögunni skal sú niðurstaða rökstudd.
     Tillaga að raflínuskipulagi skal tekin aftur til umfjöllunar í raflínunefnd þegar afstaða þeirra sveitarfélaga sem hún nær til liggur fyrir. Komist nefndin að sameiginlegri niðurstöðu skal tillagan send ráðherra til staðfestingar, ásamt athugasemdum sem bárust á kynningartíma, umsögnum hlutaðeigandi sveitarstjórna og afstöðu nefndarinnar til þeirra, innan átta vikna frá því að umsögn sveitarstjórna lá fyrir. Jafnframt skal nefndin senda tillögu sína ásamt umsögn til þeirra aðila sem gerðu athugasemdir á fyrri stigum tillögugerðar og auglýsa niðurstöðu nefndarinnar.
     Komist raflínunefnd ekki að sameiginlegri niðurstöðu um samþykkt tillögunnar innan átta vikna frá því að afstaða sveitarfélaganna lá fyrir skal auglýstri tillögu vísað til ráðherra sem tekur ákvörðun um val á valkosti og hvaða skilyrðum framkvæmdin skuli háð í skilmálum skipulagsins. Ráðherra skal við ákvörðunina hafa hliðsjón af umhverfismatsskýrslu og athugasemdum við tillöguna og umhverfismatsskýrsluna og taka mið af gildandi landsskipulagsstefnu. Ráðherra skal einnig taka mið af ákvæðum raforkulaga, gildandi stefnu stjórnvalda um flutningskerfi raforku og samþykktri kerfisáætlun. Þegar niðurstaða ráðherra liggur fyrir skal nefndin samræma skipulagstillöguna ákvörðun ráðherra og senda hana ráðherra til staðfestingar innan fjögurra vikna frá því að niðurstaða ráðherra lá fyrir. Náist ekki samkomulag um einstakar afgreiðslur nefndarinnar skal slíkum ágreiningi einnig vísað til ráðherra, sbr. 3. mgr. 9. gr. a.
     Ráðherra hafnar raflínuskipulagi eða staðfestir það skv. 3. og 4. mgr. Við yfirferð tillögunnar metur ráðherra hvort á henni séu form- eða efnisgallar. Ef ráðherra telur að á tillögunni sé form- eða efnisgalli skal hann gefa raflínunefnd færi á að koma að athugasemdum áður en hann tekur ákvörðun um afgreiðslu tillögunnar. Staðfest raflínuskipulag skal auglýst í B-deild Stjórnartíðinda og tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.
     Stefna samkvæmt raflínuskipulagi er bindandi við gerð svæðisskipulags, aðalskipulags og deiliskipulags og við útgáfu byggingar- og framkvæmdaleyfa.
     
     e. (11. gr. e.)
Heimild til að sameina skýrslugerð um umhverfismat raflínu samkvæmt lögum nr. 111/2021 og skýrslugerð um umhverfismat raflínuskipulagstillögu samkvæmt lögum þessum.
     Liggi ekki fyrir umhverfismat vegna raflínu á grundvelli málsmeðferðar skv. IV. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, er heimilt að vinna tillögu að raflínuskipulagi og umhverfismati þess og kynna samhliða mati á umhverfisáhrifum hlutaðeigandi framkvæmdar, sbr. 5. mgr. 12. gr. laga þessara og 9. gr. laga nr. 111/2021. Skal þá samþætta skýrslugerð um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar og umhverfismat raflínuskipulagstillögunnar samkvæmt lögum nr. 111/2021. Ráðherra skal kveða nánar á um slíka sameiginlega skýrslugerð, kynningu og málsmeðferð í reglugerð.
     Þegar frestur til athugasemda er liðinn skal raflínunefnd fjalla um tillögu að raflínuskipulagi á nýjan leik og á grundvelli niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum taka afstöðu til þess hvaða valkostur skuli valinn ef leyfi verður veitt og að hvaða skilyrðum uppfylltum. Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði 2. og 3. mgr. 11. gr. d.
     Komist raflínunefnd ekki að sameiginlegri niðurstöðu um samþykkt tillögunnar innan átta vikna frá því að afstaða sveitarfélaganna lá fyrir skal auglýstri tillögu vísað til ráðherra sem tekur ákvörðun um val á valkosti og hvaða skilyrðum framkvæmdin skuli háð í skilmálum skipulagsins. Ráðherra skal við ákvörðunina leggja álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat framkvæmdar til grundvallar og taka mið af gildandi landsskipulagsstefnu. Að öðru leyti gilda ákvæði 4. og 5. mgr. 11. gr. d.

8. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 7. mgr. 12. gr. laganna:
  1. Við 1. málsl. bætist: sbr. þó 4. málsl.
  2. Á eftir 2. málsl. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Raflínuskipulag er rétthærra en svæðisskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag fyrir þá framkvæmd sem það tekur til. Þegar raflínuskipulag hefur verið samþykkt skal hver sveitarstjórn sjá til þess að framkvæmdin sé tekin upp í aðalskipulag sveitarfélagsins við næstu endurskoðun þess, þó eigi síðar en fjórum árum frá samþykkt raflínuskipulagsins í samræmi við ákvæði þess.


9. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „lög um mat á umhverfisáhrifum“ í 1. mgr. kemur: lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Afla skal framkvæmdaleyfis raflínunefndar vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku þegar slík nefnd hefur verið skipuð vegna viðkomandi framkvæmdar, sbr. 9. gr. a.
  3. Á eftir orðinu „sveitarstjórnar“ í 3. mgr. kemur: eða raflínunefndar, þar sem við á.
  4. 4. mgr. orðast svo:
  5.      Við útgáfu framkvæmdaleyfis skal sveitarstjórn eða raflínunefnd, þar sem við á, fjalla um og taka afstöðu til þess hvort framkvæmd er í samræmi við skipulagsáætlanir. Hafi verið skipuð raflínunefnd skal framkvæmdaleyfi vegna viðkomandi framkvæmdar í flutningskerfi raforku vera í samræmi við raflínuskipulag sem í gildi er vegna framkvæmdarinnar. Ekki er skilyrði fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis raflínunefndar að aðlögun skipulagsáætlana sveitarfélaga að ákvæðum raflínuskipulags sé lokið, sbr. 7. mgr. 12. gr. Við útgáfu framkvæmdaleyfis skal leyfisveitandi ganga úr skugga um að gætt hafi verið ákvæða laga um náttúruvernd og annarra laga og reglugerða sem við eiga. Heimilt er að binda framkvæmd skilyrðum sem sett eru í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir.
  6. Í stað orðanna „sveitarstjórn gefur“ í 1. málsl. 6. mgr. kemur: gefið er.
  7. Í stað orðsins „Sveitarstjórn“ í 2. málsl. 7. mgr. kemur: Leyfisveitanda.


10. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „lögum um mat á umhverfisáhrifum“ í 1. og 4. mgr. og orðanna „laga um mat á umhverfisáhrifum“ í 2. mgr. kemur: lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana; og: laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
  2. Í stað orðsins „sveitarstjórn“ í 1., 2. og 3. málsl. 2. mgr. kemur: leyfisveitandi.
  3. 3. mgr. orðast svo:
  4.      Leyfisveitandi skal binda framkvæmdaleyfi þeim skilyrðum um mótvægisaðgerðir eða vöktun sem fram kunna að koma í áliti Skipulagsstofnunar að svo miklu leyti sem ekki er mælt fyrir um slík skilyrði í leyfum annarra leyfisveitenda samkvæmt sérlögum. Jafnframt er leyfisveitanda heimilt að binda framkvæmd skilyrðum sem sett eru í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir sveitarfélagsins eða raflínuskipulag.
  5. Í stað orðanna „Ákvörðun sveitarstjórnar“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: Ákvarðanir.


11. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
  1. 1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Sveitarstjórn, annar aðili sem hún hefur falið það vald, sbr. 6. gr., eða raflínunefnd hefur samþykkt veitingu framkvæmdaleyfis.
  2. Á eftir orðinu „sveitarstjórnar“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: eða raflínunefndar.
  3. Í stað orðsins „sveitarstjórn“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: leyfisveitandi.
  4. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þetta gildir þó ekki um framkvæmdir sem raflínunefnd gefur út framkvæmdaleyfi fyrir.


12. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. laganna:
  1. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Raflínunefnd hefur eftirlit með að framkvæmdir sem hún hefur veitt leyfi fyrir séu í samræmi við útgefið framkvæmdaleyfi. Skipulagsfulltrúi í hverju sveitarfélagi annast daglega framkvæmd eftirlitsins í umboði nefndarinnar samkvæmt sérstökum samstarfssamningi sem gerður skal milli nefndarinnar og hverrar sveitarstjórnar.
  2. Á eftir orðunum „að mati sveitarstjórnar“ í 2. mgr. kemur: eða raflínunefndar.
  3. Í stað orðanna „lögum um mat á umhverfisáhrifum“ í 3. mgr. kemur: lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.


13. gr.

     Við 18. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Kostnaður við gerð raflínuskipulags skal greiddur af framkvæmdaraðila, sbr. 2. og 4. mgr. 20. gr.

14. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „er heimilt að innheimta“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og raflínunefnd innheimta.
  2. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Raflínunefnd greiðir af innheimtu framkvæmdaleyfisgjaldi fyrir vinnu skipulagsfulltrúa við eftirlit.
  3. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Raflínunefnd innheimtir kostnað vegna skipulagsvinnu nefndarinnar af framkvæmdaraðila.
  4. Í stað orðanna „Sveitarstjórn skal“ í 3. mgr. kemur: Sveitarstjórn og raflínunefnd skulu.
  5. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
  6.      Ráðherra setur, að fenginni tillögu Skipulagsstofnunar, gjaldskrá vegna kostnaðar við gerð raflínuskipulags.


15. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 45. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „lögum um mat á umhverfisáhrifum“ í 3. mgr. kemur: lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
  2. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
  3.      Í skipulagsreglugerð skal kveða nánar á um skipun raflínunefndar, starfshætti og málsmeðferð.
  4. Á eftir orðinu „starfshætti“ í 1. málsl. 9. mgr. kemur: raflínunefnda.


16. gr.

     Á eftir orðunum „lögum þessum“ í 1. mgr. 49. gr. laganna kemur: annarra en raflínuskipulags.

17. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 53. gr. laganna:
  1. Við 1. mgr. bætist: eða raflínunefndar, þar sem það á við, sbr. 3. mgr. 7. gr.
  2. Á eftir orðinu „sveitarstjórn“ í 2. mgr. kemur: eða raflínunefnd, þar sem það á við.


18. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 54. gr. laganna:
  1. Á eftir orðinu „Sveitarstjórn“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og raflínunefnd.
  2. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Sinni aðili ekki fyrirmælum sveitarstjórnar eða raflínunefndar innan þess frests sem hún setur getur sveitarstjórn eða raflínunefnd, þar sem það á við, ákveðið dagsektir þar til úr verður bætt.
  3. Við 4. málsl. 1. mgr. bætist: en ríkissjóð ef raflínunefnd tekur ákvörðun um álagningu þeirra.
  4. Á eftir orðinu „Sveitarstjórn“ í 2. mgr. kemur: eða raflínunefnd.


19. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. nóvember 2023.

20. gr.

     Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
  1. Lög um náttúruvernd, nr. 60/2013:
    1. Á eftir orðinu „deiliskipulag“ í 3. málsl. 3. mgr. 37. gr. og lokamálslið 3. mgr. 61. gr. laganna kemur: eða eftir atvikum staðfest raflínuskipulag.
    2. Á eftir „svæðis-“ í 1. mgr. 68. gr. laganna kemur: raflínu-.
  2. Lög um menningarminjar, nr. 80/2012: Í stað orðanna „eða deiliskipulagi“ í 1. málsl. 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: deiliskipulagi eða raflínuskipulagi.
  3. Lög um mannvirki, nr. 160/2010: Við 18. tölul. 3. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Raflínuskipulag er skipulagsáætlun sem unnin er og samþykkt af raflínunefnd, sbr. 9. gr. a skipulagslaga, nr. 123/2010.


Samþykkt á Alþingi 23. maí 2023.