Ferill 1126. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1881  —  1126. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um lögfræðiálit Lagastofnunar HÍ.

Frá Ingu Sæland.


     1.      Hversu háa fjárhæð greiddi ráðuneytið fyrir álitsgerð sem Lagastofnun HÍ vann um upplýsingarétt þingnefnda skv. 51. gr. laga um þingsköp og umsagnir stjórnvalda skv. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt?
     2.      Hvaða gögn afhenti Útlendingastofnun allsherjar- og menntamálanefnd í kjölfar beiðni nefndarinnar með vísan til 51. gr. laga um þingsköp í desember 2021 og hvaða umbeðin gögn voru ekki afhent?


Skriflegt svar óskast.