Ferill 1136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1897 — 1136. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um gistináttaskatt.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hversu mikið var innheimt í gistináttaskatt ár hvert 2011–2022, sundurliðað eftir eftirfarandi gististöðum:
a. Flokkur I: Heimagisting,
b. Flokkur II: Gististaður án veitinga,
c. Flokkur III: Gististaður með veitingum en þó ekki áfengisveitingum,
d. Flokkur IV: Gististaður með áfengisveitingum,
e. aðrir skattskyldir aðilar samkvæmt lögum nr. 87/2011, um gistináttaskatt?
2. Hversu mikið var innheimt í gistináttaskatt ár hvert 2011–2022, sundurliðað eftir staðsetningu greiðanda:
a. Reykjavíkurborg,
b. önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu,
c. Suðurnes,
d. Suðurland,
e. Norðurland eystra,
f. Norðurland vestra,
g. Vestfirðir,
h. Vesturland?
3. Hversu miklu var varið úr ríkissjóði í uppbyggingu, viðhald og verndun fjölsóttra ferðamannastaða ár hvert 2011–2022, sundurliðað eftir staðsetningu ferðamannastaðar:
a. Reykjavíkurborg,
b. önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu,
c. Suðurnes,
d. Suðurland,
e. Norðurland eystra,
f. Norðurland vestra,
g. Vestfirðir,
h. Vesturland?
Skriflegt svar óskast.