Ferill 1137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1904  —  1137. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um meðgöngu- og ungbarnavernd á landsbyggðinni.

Frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.


     1.      Eru starfandi ljósmæður á öllum starfsstöðvum heilsugæsla á landinu? Ef ekki, hvernig er meðgöngu- og ungbarnavernd tryggð á þeim landsvæðum?
     2.      Er veitt heimaþjónusta ljósmæðra í öllum heilbrigðisumdæmum? Hvernig er heimaþjónusta tryggð á þeim stöðum þar sem ekki eru starfandi ljósmæður?


Skriflegt svar óskast.