Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Oddný G. Harðardóttir
6. þm. SU, Sf, OH
Oddný G. Harðardóttir

   
Lúðvík Geirsson

Lúðvík Geirsson

      F. í Reykjavík 21. apríl 1959. For.: Geir Gunnarsson (f. 12. apríl 1930, d. 5. apríl 2008) alþingsmaður og vararíkissáttasemjari og Ásta Lúðvíksdóttir (f. 9. maí 1930) framhaldsskólakennari. M. Hanna Björk Lárusdóttir (f. 2. nóv. 1959) fyrrum bankastarfsmaður og nú húsmóðir. For.: Lárus Sigurðsson og Guðlaug Hansdóttir. Synir: Lárus (1984), Brynjar Hans (1989), Guðlaugur Bjarki (1996).
      Sveinspróf í bakaraiðn 1978. Stúdentspróf Flensborgarskóla 1978. BA-próf í íslensku og bókmenntum HÍ 1984.
      Blaðamaður á Þjóðviljanum 1979–1989, fréttastjóri 1987-1989. Starfsmaður Blaðamannafélags Íslands 1989-2002, samhliða kennslustörfum og ritstörfum. Bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði 1994-1998, bæjarfulltrúi Fjarðarlistans 1998-2002 og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og bæjarstjóri í Hafnarfirði 2002–2010. Ráðgjafi hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2011.
      Formaður æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins 1978, formaður bæjarmálaráðs Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði 1986-1994, oddviti Fjarðarlistans í Hafnarfirði 1998-2002 og oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði 2002–2010. Seta í ýmsum nefndum og ráðum Hafnarfjarðarbæjar á árunum 1986–2010. Bæjarstjóri í Hafnarfirði 2002–2010. Formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 2004-2006 og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2006–2010. Varaformaður Blaðamannafélags Íslands 1985-1987, formaður þess 1987-1998, í samninganefnd 1985-2002. Í stjórn Norræna blaðamannasambandsins 1987-1998, í framkvæmdastjórn alþjóðablaðamannasambandsins IFJ 1987-1996, í skólastjórn Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar í Árósum 1991-1996, fyrsti formaður Fjölmiðlasambandsins 1998-2001. Formaður Knattspyrnufélagsins Hauka í Hafnarfirði 1992-2002.

      Alþm. Suðvest. 2011-2013.
      Vþm. Suðvest. okt.-nóv. 2010 (Samf.).
      Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2011-2013, velferðarnefnd 2011-2012, fjárlaganefnd 2012-2013.
      Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2011-2012.

      Haukar í 60 ár, saga knattspyrnufélagsins Hauka í Hafnarfirði, útg. 1990. Saga Félags byggingariðnaðarmanna í Hafnarfirði, útg. 1992. Höfuðstaður verslunar, saga verslunar og kaupmennsku í Hafnarfirði í sex hundruð ár, útg. 1994. Græðum hraun og grýtta mela, saga Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, útg. 1996.
      Ritstjóri: Ritstjóri bæjarblaðsins Vegamóta í Hafnarfirði 1979-1995.

Síðast breytt 29.04.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.