F. á Bessastöðum á Álftanesi 8. júlí 1829, d. 14. jan. 1896. For.: Sveinbjörn Egilsson (f. 24. des. 1791, d. 17. ágúst 1852) rektor þar og k. h. Helga Benediktsdóttir Gröndal (f. 9. júní 1800, d. 6. ágúst 1855) húsmóðir. Bróðir Þuríðar konu Eiríks Ó. Kúlds alþm. K. 1. (4. okt. 1855) Anna María Guðrún Árnadóttir Thorlacius (f. 15. des. 1829, d. 20. júlí 1862) húsmóðir. For.: Árni Thorlacius og k. h. Anna Magdalene Thorlacius. K. 2. (12. okt. 1864) Ólína Ágústa Árnadóttir Thorlacius (f. 1831, d. 3. apríl 1881) húsmóðir, systir 1. k. h., en þær voru systur Daníels Thorlaciusar alþm.
Stundaði um tíma nám í Lærða skólanum í Reykjavík, en lauk ekki prófi.
Verslunarstjóri í Stykkishólmi og síðar í Reykjavík.
Var í bæjarstjórn Reykjavíkur 1879—1885.
Alþm. Snæf. 1869—1874, alþm. Mýr. 1880—1885. Sat ekki þingið 1869.
Ritstjóri: Reykvíkingur (1891).
Síðast breytt 27.06.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur