F. í Stykkishólmi 13. júní 1928, d. 6. mars 1997. For.: Jón Ólafur Guðsteinn Eyjólfsson (f. 27. júlí 1891, d. 15. jan. 1968) kaupmaður þar og k. h. Sesselja Konráðsdóttir (f. 31. jan. 1896, d. 22. apríl 1987) skólastjóri, dótturdóttir Hjálms Péturssonar alþm. K. (9. nóv. 1956) Guðbjörg Benediktsdóttir (f. 17. mars 1929) húsmóðir. For.: Benedikt Ögmundsson og k. h. Guðrún Eiríksdóttir. Börn: Benedikt (1957), Sesselja Auður (1958), Jón Einar (1965).
Stúdentspróf VÍ 1949. Lögfræðipróf HÍ 1955. Hdl. 1956. Hrl. 1962.
Framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins og Stuðla hf. frá stofnun þeirra 1955 til 1960. Ritstjóri Morgunblaðsins 1960—1974. Rak málflutningsskrifstofu í Reykjavík frá því í september 1956.
Í sendinefnd Íslands á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1976—1982. Kosinn í Evrópustefnunefnd 1988 og formaður hennar frá 1989. Í þingmannanefnd EFTA/EES 1991—1995.
Alþm. Norðurl. v. 1974—1979 og 1983—1987, landsk. alþm. (Norðurl. v.) 1979—1983, alþm. Reykv. 1987—1995 (Sjálfstfl.).
Landsk. vþm. (Norðurl. v.) jan.—febr., apríl og des. 1968, apríl—maí 1969 og nóv.—des. 1970, vþm. Norðurl. v. mars—apríl og okt. 1968, okt.—nóv. og des. 1969, jan. 1970, okt. og des. 1971, maí og okt.—nóv. 1972, febr. og okt. 1973, jan.—febr. og mars—apríl 1974.
2. varaforseti Ed. 1979.