Friðjón Skarphéðinsson

Friðjón Skarphéðinsson

Þingseta

Alþingismaður Akureyrar 1956–1959. Landskjörinn alþingismaður (Akureyrar) 1959, (Norðurlands eystra) 1959–1963 og 1965–1967 (Alþýðuflokkur).

Landskjörinn varaþingmaður (Norðurlands eystra) nóvember–desember 1963.

Dómsmála-, landbúnaðar- og félagsmálaráðherra 1958–1959.

Forseti sameinaðs þings 1959–1963. 1. varaforseti efri deildar 1956–1958.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Oddsstöðum í Miðdölum 15. apríl 1909, dáinn 31. mars 1996. Foreldrar: Skarphéðinn Jónsson (fæddur 28. júní 1860, dáinn 17. febrúar 1919) bóndi þar og kona hans Kristín Pálmadóttir (fædd 5. ágúst 1874, dáin 28. febrúar 1937) húsmóðir. Maki 1 (2. nóvember 1937): María Dóra Þórarinsdóttir Egilson (fædd 12. apríl 1916, dáin 18. mars 1965) húsmóðir. Þau skildu 1962. Foreldrar: Þórarinn Böðvar Egilson og kona hans Elísabet Halldórsdóttir Egilson. Maki 2 (28. júní 1963): Sigríður Ólafsdóttir Thorarensen (fædd 31. maí 1930) bankastarfsmaður. Foreldrar: Ólafur Thorarensen og kona hans María Frímannsdóttir Thorarensen. Sonur Friðjóns og Maríu: Þórarinn (1938). Börn Friðjóns og Sigríðar: Ólafur Héðinn (1964), Kristín Lára (1967). Kjördóttir Friðjóns, dóttir Sigríðar: María (1956).

Stúdentspróf MR 1930. Lögfræðipróf HÍ 1935. Framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1937–1938.

Fulltrúi sýslumannsins í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógetans í Hafnarfirði 1935. Starfsmaður Olíuverslunar Íslands í Reykjavík 1936–1937. Bæjarstjóri í Hafnarfirði 1938–1945. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri 1945–1958 og 1959–1967. Skipaður 23. desember 1958 dómsmála-, landbúnaðar- og félagsmálaráðherra, lausn 19. nóvember 1959, en gegndi störfum til 20. nóvember. Yfirborgarfógeti í Reykjavík 1967–1979.

Skipaður 1941 í milliþinganefnd um orlof, formaður nefndarinnar. Bæjarfulltrúi á Akureyri 1946–1950. Fulltrúi á þingi Evrópuráðsins í Strasbourg 1958–1960 og 1964–1967. Kosinn 1957 í mannréttindanefnd Evrópuráðsins og sat í henni til 1962. Í stjórn Dómarafélags Íslands 1957–1964. Í orðunefnd 1970–1986, formaður 1980–1986.

Alþingismaður Akureyrar 1956–1959. Landskjörinn alþingismaður (Akureyrar) 1959, (Norðurlands eystra) 1959–1963 og 1965–1967 (Alþýðuflokkur).

Landskjörinn varaþingmaður (Norðurlands eystra) nóvember–desember 1963.

Dómsmála-, landbúnaðar- og félagsmálaráðherra 1958–1959.

Forseti sameinaðs þings 1959–1963. 1. varaforseti efri deildar 1956–1958.

Æviágripi síðast breytt 12. september 2019.

Áskriftir