Gunnar Jóhannsson

Gunnar Jóhannsson

Þingseta

Landskjörinn alþingismaður (Siglfirðinga, Norðurlands vestra) 1953–1963 (Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn, Alþýðubandalag).

1. varaforseti sameinaðs þings 1956–1959.

Minningarorð

Æviágrip

Fæddur í Bjarnastaðagerði í Unadal 29. september 1895, dáinn 17. október 1971. Foreldrar: Jóhann Sveinn Símonarson (fæddur 19. september 1862, dáinn 26. maí 1910) bóndi að Hrauni í Unadal og kona hans Anna Guðrún Ólafsdóttir (fædd 24. október 1859, dáin 29. desember 1935) húsmóðir. Maki (23. maí 1923): Steinþóra Einarsdóttir (fædd 18. ágúst 1890, dáin 3. mars 1984) húsmóðir. Foreldrar: Einar Einarsson og 2. kona hans Margrét Hjartardóttir. Sonur: Pétur Breiðfjörð (1926). Stjúpbörn, börn Steinþóru: Ingvar Sædal (1915), Dagrún Sædal (1918), Bjarni Sædal (1921).

Nám í unglingaskóla veturinn 1911–1912.

Stundaði sjómennsku í 12 ár og síðan landvinnu. Fluttist til Reykjavíkur 1917 og þaðan til Siglufjarðar 1928. Vann þar að ýmsum störfum, m. a. verkstjórn. Starfsmaður verkalýðsfélaganna á Siglufirði í 10 ár. Dvaldist að mestu í Reykjavík átta síðustu æviárin.

Í bæjarstjórn Siglufjarðar 1934–1958, forseti bæjarstjórnar fjögur ár.

Landskjörinn alþingismaður (Siglfirðinga, Norðurlands vestra) 1953–1963 (Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn, Alþýðubandalag).

1. varaforseti sameinaðs þings 1956–1959.

Æviágripi síðast breytt 2. september 2015.

Áskriftir