F. í Sumarliðabæ 18. febr. 1864, d. 26. júní 1961. For.: Ólafur Þórðarson (f. 20. ágúst 1829, d. 29. apríl 1898) bóndi þar og k. h. Guðlaug Þórðardóttir (f. 22. sept. 1839, d. 13. mars 1920) húsmóðir. Bróðir Jóns Ólafssonar alþm. og bankastjóra. K. (1. sept. 1898) Jóhanna Eyþórsdóttir (f. 18. okt. 1870, d. 19. júlí 1944) húsmóðir. For.: Eyþór Felixson, föðurbróðir Ásgeirs Ásgeirssonar alþm. og forseta Íslands, og k. h. Kristín Grímsdóttir. Börn: Ólafur (1899), Sigurður Ásgeir (1901), Nanna (1903), Guðlaug (1906), Eyþór (1908), Kristín (1910).
Nám í kvöldskóla verslunarmanna í Reykjavík 1888—1889.
Sótti sjó á vetrum, en vann sveitavinnu á sumrum í æsku. Verslunarmaður í Reykjavík 1889—1896, starfsmaður Brydes-verslunar í Vík í Mýrdal, bókhaldari 1896—1899, en verslunarstjóri 1899—1908. Fluttist til Vestmannaeyja 1909 og rak þar verslun og útgerð, lengi í félagi við Jóhann Þ. Jósefsson alþm. og ráðherra, oft settur sýslumaður í Vestmannaeyjum.
Vararæðismaður Norðmanna frá 1916.