Jakob Möller

Jakob Möller

Þingseta

Alþingismaður Reykvíkinga 1919–1927 (utan flokka, (Sjálfstæðisflokkurinn eldri), Borgaraflokkurinn eldri, Frjálslyndi flokkurinn) og 1931–1945 (Sjálfstæðisflokkur).

Fjármálaráðherra 1939–1942, fjármála- og dómsmálaráðherra 1942.

1. varaforseti sameinaðs þings 1937–1939.

Minningarorð

Æviágrip

Fæddur á Stóra-Bergi á Hólanesi við Skagaströnd 12. (kirkjubók: 11.) júlí 1880, dáinn 5. nóvember 1955. Foreldrar: Ole Peter Christian Möller (fæddur 7. ágúst 1854, dáinn 27. október 1917) kaupmaður, síðast á Hjalteyri og kona hans Ingibjörg Gísladóttir (fædd 2. nóvember 1853, dáin 21. október 1942) húsmóðir. Maki (6. nóvember 1910) Þóra Guðrún Þórðardóttir Möller, fædd Guðjohnsen (fædd 9. nóvember 1887, dáin 25. maí 1922) húsmóðir. Foreldrar: Þórður Guðjohnsen og Þuríður Indriðadóttir. Synir: Gunnar Jens (1911), Ingólfur (1913), Baldur (1914), Þórður (1917). Dóttir Jakobs og Elínar Einarsdóttur: Helga Kristín (1924).

Stúdentspróf Lsk. 1902. Stundaði verkfræðinám í Kaupmannahöfn 1902–1905 og læknisfræðinám í Reykjavík 1906–1909, en lauk ekki námi.

Ritari í Landsbankanum í Reykjavík 1909–1915. Ritstjóri í Reykjavík 1915–1924 og aftur síðar nokkurn tíma. Fékkst þá við ýmis störf í Reykjavík um skeið. Stjórnarformaður og síðar framkvæmdastjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur frá stofnun þess 1937–1945. Skipaður 17. apríl 1939 fjármálaráðherra, lausn 7. nóvember 1941, en gegndi störfum til 18. nóvember. Skipaður 18. nóvember 1941 fjármálaráðherra að nýju, fór einnig með iðnaðarmál, jafnframt falið 17. janúar 1942 að fara með bæjar- og sveitarstjórnarmál, lausn 16. maí 1942. Skipaður 16. maí 1942 fjármála-, dómsmála- og félagsmálaráðherra, lausn 14. nóvember 1942, en gegndi störfum til 16. desember. Skipaður 1945 sendiherra í Kaupmannahöfn, 1947 jafnframt sendiherra í Finnlandi. Lét af þeim störfum 1951.

Í fulltrúaráði Íslandsbanka 1922–1924. Skipaður 1924 eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum og gegndi þeim starfa til 1934, en var síðan eftirlitsmaður með opinberum sjóðum til 1939. Í stjórn Þjóðleikhússjóðs 1924. Skipaður 1927 í matsnefnd Landsbankans. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1930–1945. Kosinn 1933 í Þingvallanefnd. Í stjórn byggingarsjóðs verkamannabústaða 1935–1945. Í eftirlitsráði með opinberum rekstri 1935–1936. Kosinn 1935 í stjórn markaðs- og verðjöfnunarsjóðs. Í landsbankanefnd 1936–1945, í milliþinganefnd um tryggingamál 1942, í milliþinganefnd um launamál 1943 og milliþinganefnd um undirbúning verklegra framkvæmda. Í bankaráði Landsbankans 1944–1945. Í samninganefnd um viðskipti við Dani 1948–1950.

Alþingismaður Reykvíkinga 1919–1927 (utan flokka, (Sjálfstæðisflokkurinn eldri), Borgaraflokkurinn eldri, Frjálslyndi flokkurinn) og 1931–1945 (Sjálfstæðisflokkur).

Fjármálaráðherra 1939–1942, fjármála- og dómsmálaráðherra 1942.

1. varaforseti sameinaðs þings 1937–1939.

Ritstjóri: Vísir (1915–1924).

Æviágripi síðast breytt 25. ágúst 2020.

Áskriftir