Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Karl Garðarsson
8. þm. RS, F, KG
Karl Garðarsson

   
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir

      F. í Reykjarfirði, Norður-Ísafjarðarsýslu 26. sept. 1935. For.: Kristján S. Guðjónsson (f. 17. nóv. 1911, d. 22. des. 1989) trésmiður, móðurbróðir Ingibergs J. Hannessonar alþm., og k. h. Jóhanna Jakobsdóttir (f. 16. okt. 1913) húsmóðir. Systir Guðjóns Arnars Kristjánssonar vþm. M. (27. des. 1957) Guðmundur Helgi Ingólfsson (f. 6. okt. 1933) framkvæmdastjóri. For.: Ingólfur Jónsson og k. h. Guðbjörg Torfadóttir. Börn: Gylfi Reynir (1956), Halldór Sigurður (1959), Kristján Jóhann (1962), Ingibjörg María (1967), Jóhannes Bjarni (1974).
      Gagnfræðapróf Ísafirði 1952. Nám í orgelleik við Tónlistarskóla Ísafjarðar 1952—1954. Próf frá Húsmæðraskólanum Ósk á Ísafirði 1955. Nám í tungumálum og bókfærslu við Kvöldskólann á Ísafirði 1973— 1975. Starfsleikninám kennara 1989—1991.
      Starfaði í Ísafjarðar Apóteki 1952—1958. Stundakennari við Barnaskólann í Hnífsdal 1958—1962. Kennari við Barnaskóla Ísafjarðar 1972—1974 og stundakennari við Grunnskólann á Ísafirði 1989—1991. Starfaði sjálfstætt við fatasaum (jafnframt húsmóðurstörfum) 1963—1972. Rekstrarstjóri Félagsheimilisins í Hnífsdal 1974—1978. Útibússtjóri Kaupfélags Ísfirðinga í Hnífsdal 1978—1981. Störf á Endurskoðunar- og bókhaldsstofu Guðmundar E. Kjartanssonar, síðar Löggiltum endurskoðendum hf. 1981—1991.
      Í skólanefnd Eyrarhrepps 1964—1972. Formaður Kvenfélagsins Hvatar í Hnífsdal 1974—1982 og 1986—1988. Formaður byggingarnefndar leikskóla í Hnífsdal 1979—1982. Formaður Sambands vestfirskra kvenna 1983—1989. Í stjórn Kvenfélagasambands Íslands 1987—1991. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1991—1995. Í samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkju 1991—1995. Í landsdómi síðan 1999.

      Alþm. Vestf. 1991—1995 (Kvennal.).
      Formaður þingflokks Samtaka um kvennalista 1993—1995.

      Ritstjóri: Fréttablað Sambands vestfirskra kvenna (1987—1994). Pilsaþytur á Vestfjörðum (síðan 1991).

Síðast breytt 16.06.2003. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.