Kristján L. Möller

Kristján L. Möller

Þingseta

Alþingismaður Norðurlands vestra 1999–2003, alþingismaður Norðausturkjördæmis 2003–2016 (Samfylkingin).

Samgönguráðherra 2007–2009, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2009–2010.

3. varaforseti Alþingis 2010–2013, 1. varaforseti 2013–2016.

Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Siglufirði 26. júní 1953. Foreldrar: Jóhann G. Möller (fæddur 27. maí 1918, dáinn 25. júní 1997) verkstjóri og bæjarfulltrúi og Helena Sigtryggsdóttir (fædd 21. september 1923) húsmóðir. Maki (22. júlí 1978): Oddný Hervör Jóhannsdóttir (fædd 19. október 1956) framkvæmdastjóri. Foreldrar: Jóhann Kristjánsson og Evlalía Sigurgeirsdóttir. Synir: Jóhann Georg (1979), Almar Þór (1983), Elvar Ingi (1988).

Próf frá Iðnskóla Siglufjarðar 1971. Kennarapróf frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1976. Ýmis námskeið á sviði félags- og íþróttamála í Noregi og Svíþjóð 1977–1982.

Æskulýðs- og íþróttafulltrúi Siglufjarðar 1970–1974. Íþróttakennari í Bolungarvík 1976–1978. Íþróttafulltrúi Siglufjarðar 1978–1988. Verslunarstjóri í Rafbæ Siglufirði 1988–1990. Rak verslunina Siglósport 1990–1999. Samgönguráðherra 24. maí 2007 til 10. maí 2009, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 10. maí 2009 til 2. september 2010.

Bæjarfulltrúi á Siglufirði 1986–1998, forseti bæjarstjórnar 1986–1987, 1990–1994 og 1994–1998. Bæjarráðsmaður 1986–1990. Formaður veitusölunefndar Siglufjarðar 1991. Stjórnarmaður í Síldarverksmiðjum ríkisins 1986–1990. Í stjórn Þormóðs ramma Siglufirði 1982–1984. Í byggðanefnd forsætisráðherra 1998–1999.

Alþingismaður Norðurlands vestra 1999–2003, alþingismaður Norðausturkjördæmis 2003–2016 (Samfylkingin).

Samgönguráðherra 2007–2009, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2009–2010.

3. varaforseti Alþingis 2010–2013, 1. varaforseti 2013–2016.

Félagsmálanefnd 1999–2000, samgöngunefnd 1999–2003 og 2004–2007, iðnaðarnefnd 2003–2004, 2010–2011 (formaður 2010–2011), sjávarútvegsnefnd 2003–2006, heilbrigðis- og trygginganefnd 2006–2007, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2010, heilbrigðisnefnd 2010–2011, þingskapanefnd 2011–2013 og 2013–2016, atvinnuveganefnd 2011–2013 (formaður) og 2013–2016, velferðarnefnd 2011–2013.

Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2003–2007.

Ritstjóri: Neisti Siglufirði, málgagn siglfirskra jafnaðarmanna (síðan 1979).

Æviágripi síðast breytt 5. febrúar 2020.

Áskriftir