F. á Hofi í Vopnafirði 10. jan. 1851, d. 24. júní 1908. For.: Halldór Jónsson (f. 25. febr. 1810, d. 17. júlí 1881) alþm. og 1. k. h. Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir (f. 9. maí 1824, d. 12. ágúst 1856) húsmóðir. Faðir Guðrúnar Lárusdóttur alþm., tengdafaðir Þorsteins Briems alþm. og ráðherra. K. (6. maí 1876) Kirstín Katrín Pétursdóttir Guðjohnsen (f. 6. maí 1850, d. 28. sept. 1940) húsmóðir. For.: Pétur Guðjohnsen alþm. og k. h. Guðrún Sigríður Lauritzdóttir Guðjohnsen, f. Knudsen. Börn: Sigríður (1877), Halldór (1878), Guðrún (1880), Halldór (1881), Pétur (1882), Valgerður (1885), Gunnþórunn (1890).
Stúdentspróf Lsk. 1870. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1873.
Stundakennari í kristnum fræðum við Lærða skólann í Reykjavík veturinn 1873—1874. Biskupsritari 1874—1877. Fékk Valþjófsstað 1877, leystur frá embætti 28. júní 1883 vegna þess að hann tók upp breytingar í kirkjusiðum. Prófastur í Norður-Múlaprófastsdæmi 1878—1883. Prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reyðarfirði 1885—1899, sat á Grund í Eskifirði 1884—1888, síðan á Kollaleiru. Prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík 1899—1903. Settur kennari við Lærða skólann 1904. Eftir að hann kom til Reykjavíkur stýrði hann, lengstum með öðrum, Aldarprentsmiðju, en seldi prentverkið 1907.
Sýslunefndarmaður í Norður-Múlasýslu 1878—1884. Yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1902—1903.
Alþm. S.- Múl. 1886—1892 (sat ekki þing 1889).
Ritstjóri: Fríkirkjan (1899—1902).
Síðast breytt 15.08.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur