Tómas Árnason

Tómas Árnason

Þingseta

Alþingismaður Austurlands 1974–1984 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Eyfirðinga janúar–febrúar 1956, Norður-Múlasýslu janúar og júlí–ágúst 1959 og Austurlands janúar, febrúar–mars og október–nóvember 1968, febrúar og mars–apríl 1969, mars–apríl, október–nóvember og desember 1970, febrúar 1971, febrúar–mars 1972 og mars 1973 (Framsóknarflokkur).

Fjármálaráðherra 1978–1979, viðskiptaráðherra 1980–1983.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Hánefsstöðum við Seyðisfjörð 21. júlí 1923, dáinn 24. desember 2014. Foreldrar: Árni Vilhjálmsson (fæddur 9. apríl 1893, dáinn 11. janúar 1973) útgerðarmaður og síðar erindreki Fiskifélags Íslands, bróðir Sigurðar Vilhjálmssonar varaþingmanns, og kona hans Guðrún Þorvarðardóttir (fædd 7. janúar 1892, dáinn 26. október 1957) húsmóðir. Kona (25. júní 1949) Þóra Kristín Eiríksdóttir (fædd 13. mars 1926, dáin 14. janúar 2007) húsmóðir. Foreldrar: Eiríkur Ármannsson og kona hans Guðný Þórarinsdóttir. Synir: Eiríkur (1950), Árni (1955), Tómas Þór (1959), Gunnar Guðni (1963).

Nám í Alþýðuskólanum á Eiðum 1939–1941. Stúdentspróf MA 1945. Lögfræðipróf HÍ 1949. Framhaldsnám við Harvard Law School í Bandaríkjunum 1951–1952 og lauk þar prófi í alþjóðaverslunarrétti. Hdl. 1950. Hrl. 1964.

Rak málflutningsskrifstofu á Akureyri 1949–1951 og 1952–1953, jafnframt stundakennari við gagnfræðaskólann þar, erindreki framsóknarfélaganna og blaðamaður við Dag. Starfsmaður í utanríkisráðuneytinu 1953–1960, forstöðumaður og deildarstjóri varnarmáladeildar frá stofnun hennar 10. nóvember 1953 til 1960. Rak málflutningsskrifstofu í Reykjavík ásamt Vilhjálmi bróður sínum 1960–1972. Framkvæmdastjóri Tímans 1960–1964. Framkvæmdastjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins 1972–1978 og 1983–1984. Skipaður 1. september 1978 fjármálaráðherra, lausn 12. október 1979, en gegndi störfum til 15. október. Skipaður 8. febrúar 1980 viðskiptaráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí. Bankastjóri við Seðlabanka Íslands 1985–1993.

Formaður varnarmálanefndar 1953–1959. Gjaldkeri Framsóknarflokksins 1968–1978 og ritari hans 1979–1983. Í stjórn Framkvæmdasjóðs Íslands 1966–1971 og 1985–1992. Skipaður 1967 í nefnd til að semja drög að löggjöf um eftirlit með einokun, hringamyndun og verðlagi. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1969. Fulltrúi á fundum Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1974–1977 og 1983–1984. Í stjórnarskrárnefnd 1976–1978. Fulltrúi Íslands á fundum Alþjóðabankans 1978–1982. Í ráðherraráði EFTA-landanna 1980–1983, formaður ráðsins 1982. Fulltrúi Íslands á fundum þingmannanefndar EFTA 1983–1984. Í stjórn Norræna fjárfestingarbankans síðan 1993. Í stjórn EFTA-iðnþróunarsjóðs Portúgals síðan 1993.

Alþingismaður Austurlands 1974–1984 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Eyfirðinga janúar–febrúar 1956, Norður-Múlasýslu janúar og júlí–ágúst 1959 og Austurlands janúar, febrúar–mars og október–nóvember 1968, febrúar og mars–apríl 1969, mars–apríl, október–nóvember og desember 1970, febrúar 1971, febrúar–mars 1972 og mars 1973 (Framsóknarflokkur).

Fjármálaráðherra 1978–1979, viðskiptaráðherra 1980–1983.

Æviágripi síðast breytt 7. október 2019.

Áskriftir