Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Willum Þór Þórsson
5. þm. SV, F, WÞ
Willum Þór Þórsson

   
Vilhjálmur Egilsson

Vilhjálmur Egilsson

      F. á Sauðárkróki 18. des. 1952. For.: Egill Bjarnason (f. 9. nóv. 1927) ráðunautur og k. h. Alda Vilhjálmsdóttir (f. 20. nóv. 1928) verkstjóri. K. (12. okt. 1974) Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir (f. 17. sept. 1951) skáld og húsmóðir. For.: Ófeigur J. Ófeigsson og k. h. Ragnhildur Ásgeirsdóttir. Börn: Anna Katrín (1975), Bjarni Jóhann (1978), Ófeigur Páll (1985), Ragnhildur Alda (1990).
      Stúdentspróf MA 1972. Viðskiptafræðipróf HÍ 1977. MA-próf í hagfræði Suður-Kaliforníu-háskóla í Los Angeles 1980 og doktorspróf 1982.
      Framkvæmdastjóri SUS á sumrum 1976 og 1977. Hagfræðingur Félags íslenskra iðnrekenda sumurin 1978 og 1981. Hagfræðingur Vinnuveitendasambands Íslands 1982-1987. Framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands 1987-2003. Fulltrúi (skrifstofustjóri) í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Whashington 2003. Ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu 2004-2006. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins frá 2006.
      Í deildarráði viðskiptadeildar Háskóla Íslands 1976-1977. Ritstjóri Hagmála 1975-1976. Í kauplagsnefnd 1982-1987. Í þriggjamannanefnd Verðlagsráðs 1983-1987, í Verðlagsráði frá 1987. Í stjórn Íslensk-ameríska félagsins frá 1983. Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 1985-1987. Formaður EAN á Íslandi frá 1987 og formaður EDI-félagsins frá 1989. Stjórnarformaður Skjaldar hf., Sauðárkróki, 1989-1993. Í stjórn Handsals hf. 1991-1992. Í þingmannanefnd EFTA/EES frá 1991, formaður Íslandsdeildarinnar frá 1991 og formaður þingmannanefndarinnar 1991-1992. Formaður stjórnar Kvikmyndasjóðs 1994-2003.

      Alþm. Norðurl. v. 1991-2003 (Sjálfstfl.).
      Vþm. Norðurl. v. febr.-mars 1988.
      Sjávarútvegsnefnd 1991-1996 og 1997-2003, efnahags- og viðskiptanefnd 1991-2003 (form. 1995-2003), sérnefnd um stjórnarskrármál 1992-1993, 1996-1997 og 1999, sérnefnd um fjárreiður ríkissins 1995-1997, kjörbréfanefnd 2001-2003.
      Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 1996-2003 (form.).

      Ritstjóri: Hagmál (1975-1976).

Síðast breytt 18.01.2006. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.