Ólöf Nordal

Ólöf Nordal

Þingseta

Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2007–2009, alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2009–2013 og 2016–2017 (Sjálfstæðisflokkur).

Innanríkisráðherra 2014–2017.

Minningarorð

Æviágrip

Fædd í Reykjavík 3. desember 1966, dáin 8. febrúar 2017. Foreldrar: Jóhannes Nordal (fæddur 11. maí 1924) fyrrverandi seðlabankastjóri og Dóra Guðjónsdóttir Nordal (fædd 28. mars 1928) píanóleikari og húsmóðir. Maki: Tómas Már Sigurðsson (fæddur 1. febrúar 1968) forstjóri. Foreldrar: Sigurður Kristján Oddsson og Herdís Tómasdóttir. Börn: Sigurður (1991), Jóhannes (1994), Herdís (1996), Dóra (2004).

Stúdentspróf MR 1986. Lögfræðipróf frá HÍ 1994. MBA-próf frá HR 2002.

Deildarstjóri í samgönguráðuneyti 1996–1999. Lögfræðingur hjá Verðbréfaþingi Íslands 1999–2001. Stundakennari í lögfræði við Viðskiptaháskólann á Bifröst 1999–2002. Deildarstjóri viðskiptalögfræðideildar Viðskiptaháskólans á Bifröst 2001–2002. Yfirmaður heildsöluviðskipta hjá Landsvirkjun 2002–2004. Framkvæmdastjóri sölusviðs hjá RARIK 2004–2005 en 2005 var rafmagnssala tekin inn í sérstakt fyrirtæki, Orkusöluna, framkvæmdastjóri Orkusölunnar 2005–2006. Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands 2013–2014. Innanríkisráðherra 4. desember 2014 til 11. janúar 2017.

Formaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Auðar á Austurlandi 2006–2009. Formaður Spes, hjálparsamtaka vegna byggingar barnaþorpa í Afríku. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2010–2013 og 2015–2017.

Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2007–2009, alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2009–2013 og 2016–2017 (Sjálfstæðisflokkur).

Innanríkisráðherra 2014–2017.

Allsherjarnefnd 2007–2010, samgöngunefnd 2007–2009, umhverfisnefnd 2007–2009, fjárlaganefnd 2009–2010, kjörbréfanefnd 2009–2011, sérnefnd um stjórnarskrármál 2010–2011, utanríkismálanefnd 2010–2011, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2011–2013 og 2017, velferðarnefnd 2017.

Æviágripi síðast breytt 21. apríl 2017.

Áskriftir