Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Gísli Rafn Ólafsson
13. þm. SV, P, GRÓ
Gísli Rafn Ólafsson

   
Finnur Ingólfsson

Finnur Ingólfsson

Fæddur í Vík í Mýrdal 8. ágúst 1954. Foreldrar: Ingólfur Þorsteinn Sæmundsson (fæddur 3. desember 1916, dáinn 14. júlí 2004) skrifstofumaður og kona hans Svala Magnúsdóttir (fædd 20. mars 1920, dáin 7. mars 1992) húsmóðir. Maki (5. ágúst 1977): Kristín Vigfúsdóttir (fædd 30. desember 1955) hjúkrunarfræðingur. Foreldrar: Vigfús Magnússon og kona hans Fanney Reykdal. Börn: Fanney (1980), Ingi Þór (1982), Hulda (1989).

Nám við Samvinnuskólann á Bifröst 1973-1975. Stúdentspróf Samvinnuskólanum í Reykjavík 1979. Viðskiptafræðipróf HÍ 1984.

Framkvæmdastjóri Prjónastofunnar Kötlu 1975-1976. Framkvæmdastjóri Prjónastofunnar Dyngju 1977-1978. Stundakennari í hagfræði við Flensborgarskólann í Hafnarfirði 1982-1983. Aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra 1983-1987. Aðstoðarmaður heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1987-1991. Skipaður 23. apríl 1995 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skipaður 28. maí 1999 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 31. desember 1999.

Formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands 1981-1982. Formaður Sambands ungra framsóknarmanna 1982-1986, gjaldkeri Framsóknarflokksins 1986-1994, formaður fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík 1987-1991 og varaformaður Framsóknarflokksins 1998-2001. Í samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins við lækna 1987-1991. Í stjórn Álafoss 1984-1986. Formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta 1985-1987. Fulltrúi Alþingis á RÖSE-þingi 1994. Fulltrúi í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1993.

Alþingismaður Reykvíkinga 1991-1999 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Reykvíkinga nóvember-desember 1987, október-nóvember 1988, maí 1989, janúar-febrúar 1990.

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1995-1999.

Formaður þingflokks framsóknarmanna 1994-1995.



Síðast breytt 12.09.2019. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.












Þetta vefsvæði byggir á Eplica