F. að Hoffelli í Nesjahreppi 14. des. 1930, d. 12. júlí 2008. For.: Jón J. Malmquist (f. 12. okt.1888, d. 27. mars 1956) bóndi þar og Halldóra Guðmundsdóttir (f. 1. júní 1901, d. 4. ágúst 1985) húsmóðir. K. (25. des. 1955) Halldóra Hjaltadóttir (f. 3. jan. 1929) húsmóðir. For.: Hjalti Jónsson og k. h. Anna Þorleifsdóttir, dóttir Þorleifs Jónssonar alþm. og systir Þorbergs Þorleifssonar alþm. Börn: Anna (1955), Valgerður (1956), Hjalti (1960), Eiríkur (1962).
Búfræðipróf Hvanneyri 1950, búfræðikandídat Hvanneyri 1953.
Ráðunautur hjá Búnaðarfélagi Íslands 1954-1955. Starfsmaður Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga 1956-1957, síðan ráðunautur til 1980.
Fulltrúi á Búnaðarþingi 1954-1995. Í stjórn Búnaðarfélags Íslands 1991-1995. Í hreppsnefnd Nesjahrepps 1962-1982. Í skólanefnd Bændaskólans á Hvanneyri síðan 1979, formaður um skeið. Í stjórn Áburðarverksmiðjunnar 1985-1993. Í stjórn Byggðastofnunar síðan 1991, formaður 1995. Formaður í fagráði Landgræðslu ríkisins frá 1992.