Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Jón Gunnarsson
2. þm. SV, S, JónG
Jón Gunnarsson

   
Jón Bjarnason

Jón Bjarnason

Fæddur í Asparvík í Strandasýslu 26. desember 1943. Foreldrar: Bjarni Jónsson (fæddur 2. september 1908, dáinn 10. janúar 1990) útvegsbóndi og Laufey Valgeirsdóttir (fædd 19. ágúst 1917, dáin 6. febrúar 2007). Mágur Hjálmars Jónssonar alþingismanns. Maki (28. ágúst 1966): Ingibjörg Sólveig Kolka Bergsteinsdóttir (fædd 15. október 1947) þroskaþjálfi. Foreldrar: Bergsteinn Sigurðsson og Ingibjörg Kolka Pálsdóttir. Börn: Bjarni (1966), Ásgeir (1970), Ingibjörg Kolka (1971), Laufey Erla (1978), Katrín Kolka (1982), Páll Valdimar Kolka (1983).

Stúdentspróf MR 1965. Búfræðipróf Hvanneyri 1967. Búfræðikandidat frá Landbúnaðarháskólanum í Ási í Noregi 1970.

Kennari við Lækjarskóla í Hafnarfirði 1965-1966. Kennari við Bændaskólann á Hvanneyri 1970-1974. Bóndi í Bjarnarhöfn 1971-1982. Stundakennari við Grunnskóla Stykkishólms 1976-1981. Skólastjóri Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal 1981-1999. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 10. maí 2009 til 31. desember 2011.

Formaður stjórnar Kaupfélags Stykkishólms 1977-1981. Oddviti Helgafellssveitar 1978-1982. Fulltrúi á aðalfundum Stéttarsambands bænda 1978-1982. Fulltrúi í búfræðslunefnd 1981-1999.

Alþingismaður Norðurlands vestra 1999-2003, alþingismaður Norðvesturkjördæmis 2003-2013 (Vinstrihreyfingin - grænt framboð, utan flokka).

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2009-2011.

Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 2009.

Fjárlaganefnd 1999-2009, samgöngunefnd 1999-2003, landbúnaðarnefnd 2003-2007, sjávarútvegsnefnd 2006-2007, viðskiptanefnd 2007-2009, efnahags- og skattanefnd 2009, efnahags- og viðskiptanefnd 2012-2013, utanríkismálanefnd 2012-2013.

Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2007-2009.



Síðast breytt 15.11.2019.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.












Þetta vefsvæði byggir á Eplica