Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Dagbjört Hákonardóttir
11. þm. RN, Sf, DagH
Dagbjört Hákonardóttir

   
Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson

Fæddur í Reykjavík 1. september 1960. Foreldrar: Níels Helgi Jónsson (fæddur 23. maí 1921, dáinn 31. desember 2005) bifreiðarstjóri og Dóra Unnur Guðlaugsdóttir (fædd 6. ágúst 1925, dáin 12. desember 2017) húsmóðir, matráðskona og verslunarmaður. Maki: Arnfríður Einarsdóttir (fædd 1. apríl 1960) Landsréttardómari og forseti Félagsdóms. Foreldrar: Einar Þorsteinsson og Henný Dagný Sigurjónsdóttir. Synir: Einar (1989), Helgi (1991).

Stúdentspróf MH 1981. Embættispróf í lögfræði HÍ 1986. Hdl. 1989. Hrl. 1998.

Fulltrúi yfirborgarfógetans í Reykjavík 1986-1991. Hefur rekið eigin lögmannsstofu síðan 1991.

Formaður Lögmannafélags Íslands 2010-2012.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2013-2016, alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2016-2021 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður febrúar–mars 2023 og mars-apríl 2023 (Sjálfstæðisflokkur).

2. varaforseti Alþingis 2017-2021.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2013-2016, 2017 (formaður 2017) og 2017-2021, umhverfis- og samgöngunefnd 2013-2014, velferðarnefnd 2014-2015, efnahags- og viðskiptanefnd 2015-2017, 2017 og 2017-2021.

Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2013, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2016 og 2017, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2017-2021, þingmannanefnd Íslands og ESB 2018-2021.



Síðast breytt 03.04.2023.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.