F. í Vík í Mýrdal 8. ágúst 1954. For.: Ingólfur Þorsteinn Sæmundsson (f. 3. des. 1916) skrifstofumaður og k. h. Svala Magnúsdóttir (f. 20. mars 1920, d. 7. mars 1992) húsmóðir. K. (5. ágúst 1977) Kristín Vigfúsdóttir (f. 30. des. 1955) hjúkrunarfræðingur. For.: Vigfús Magnússon og k. h. Fanney Reykdal. Börn: Fanney (1980), Ingi Þór (1982), Hulda (1989).
Nám við Samvinnuskólann á Bifröst 1973-1975. Stúdentspróf Samvinnuskólanum í Reykjavík 1979. Viðskiptafræðipróf HÍ 1984.
Framkvæmdastjóri Prjónastofunnar Kötlu 1975-1976. Framkvæmdastjóri Prjónastofunnar Dyngju 1977-1978. Stundakennari í hagfræði við Flensborgarskólann í Hafnarfirði 1982-1983. Aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra 1983-1987. Aðstoðarmaður heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1987-1991. Skip. 23. apríl 1995 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skip. 28. maí 1999 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 31. desember 1999.
Formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands 1981-1982. Formaður Sambands ungra framsóknarmanna 1982-1986, gjaldkeri Framsóknarflokksins 1986-1994, formaður fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík 1987-1991 og varaformaður Framsóknarflokksins 1998-2001. Í samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins við lækna 1987-1991. Í stjórn Álafoss 1984-1986. Formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta 1985-1987. Fulltrúi Alþingis á RÖSE-þingi 1994. Fulltrúi í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1993.
Alþm. Reykv. 1991-1999 (Framsfl.).
Vþm. Reykv. nóv.-des. 1987, okt.-nóv. 1988, maí 1989, jan.-febr. 1990.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1995-1999.
Formaður þingflokks framsóknarmanna 1994-1995.
Síðast breytt 19.12.2005. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur