Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Jón Gunnarsson
6. þm. SV, S, JónG
Jón Gunnarsson

   
Jón Bjarnason

Jón Bjarnason

      F. í Asparvík í Strandasýslu 26. des. 1943. For.: Bjarni Jónsson (f. 2. sept. 1908, d. 10. jan. 1990) útvegsbóndi og Laufey Valgeirsdóttir (f. 19. ágúst 1917, d. 6. febr. 2007). Mágur Hjálmars Jónssonar alþm. M. (28. ágúst 1966) Ingibjörg Sólveig Kolka Bergsteinsdóttir (f. 15. okt. 1947) þroskaþjálfi. For.: Bergsteinn Sigurðsson og Ingibjörg Kolka Pálsdóttir. Börn: Bjarni (1966), Ásgeir (1970), Ingibjörg Kolka (1971), Laufey Erla (1978), Katrín Kolka (1982), Páll Valdimar Kolka (1983).
      Stúdentspróf MR 1965. Búfræðipróf Hvanneyri 1967. Búfræðikandidat frá Landbúnaðarháskólanum í Ási í Noregi 1970.
      Kennari við Lækjarskóla í Hafnarfirði 1965-1966. Kennari við Bændaskólann á Hvanneyri 1970-1974. Bóndi í Bjarnarhöfn 1971-1982. Stundakennari við Grunnskóla Stykkishólms 1976-1981. Skólastjóri Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal 1981-1999. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 10. maí 2009 til 31. des. 2011.
      Formaður stjórnar Kaupfélags Stykkishólms 1977-1981. Oddviti Helgafellssveitar 1978-1982. Fulltrúi á aðalfundum Stéttarsambands bænda 1978-1982. Fulltrúi í búfræðslunefnd 1981-1999.

      Alþm. Norðurl. v. 1999-2003, alþm. Norðvest. 2003-2013 (Vg., Ufl.).
      Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2009-2011.
      Formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs 2009.
      Fjárlaganefnd 1999-2009, samgöngunefnd 1999-2003, landbúnaðarnefnd 2003-2007, sjávarútvegsnefnd 2006-2007, viðskiptanefnd 2007-2009, efnahags- og skattanefnd 2009, efnahags- og viðskiptanefnd 2012-2013, utanríkismálanefnd 2012-2013.
      Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2007-2009.


Síðast breytt 29.04.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.