Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Kristján Þór Júlíusson
2. þm. NA, S, KÞJ
Kristján Þór Júlíusson

   
Kolbrún Halldórsdóttir

Kolbrún Halldórsdóttir (Kolbrún Kristjana)

      F. í Reykjavík 31. júlí 1955. For.: Halldór Viðar Pétursson (f. 29. sept. 1928, d. 22. mars 2009) matsveinn og k. h. Halldóra Sigrún Ólafsdóttir (f. 14. maí 1926, d. 6. febr. 2007) kennari og húsmóðir, systir Magnúsar Torfa Ólafssonar alþm. og ráðherra. M. (1. maí 1980) Ágúst Pétursson (f. 12. maí 1953) kennari. For.: Pétur Ágústsson og k. h. Guðrún Kristjánsdóttir. Börn: Orri Huginn (1980), Alma (1995).
      Verslunarpróf VÍ 1973. Burtfararpróf frá Leiklistarskóla Íslands 1978.
      Leikari og hvíslari hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1978-1979, leikari og bókhaldari í Alþýðuleikhúsinu 1979-1983. Fulltrúastörf á skrifstofu Listahátíðar Reykjavíkur, störf hjá Kvikmyndafélaginu Óðni og Kvikmynd og fulltrúastörf hjá Leiklistarskóla Íslands 1979-1983. Framkvæmdastjóri Kramhússins 1984-1985. Leikstjóri og leikari hjá Svörtu og sykurlausu 1983-1986. Dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið, hljóðvarp og sjónvarp 1980-1990. Framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra leikfélaga 1988-1993. Fastráðinn leikstjóri við Þjóðleikhúsið 1995-1998. Lausráðinn leikstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar og hjá sjálfstætt starfandi atvinnuleikhópum 1980-1999, auk þess að hafa leikstýrt fjölda leiksýninga hjá skólaleikfélögum og áhugamannaleikfélögum um land allt. Kennsla á leiklistarnámskeiðum víða um land, í Færeyjum og á Írlandi. Stjórnandi stórra menningarviðburða, m.a. Þjóðleiks á Þingvöllum á Lýðveldishátíðinni 1994, dagskrárstjóri á Kristnihátíð á Þingvöllum 2000. Skip. umhverfisráðherra og ráðherra norrænna samstarfsmála 1. febr. 2009, lausn 10. maí 2009.
      Fulltrúi í skólanefnd Leiklistarskóla Íslands 1977-1978 og 1988-1993. Ritari IV. deildar Félags íslenskra leikara 1980-1981. Formaður IV. deildar Félags íslenskra leikara 1981-1982. Fulltrúi í Leiklistarsambandi Íslands 1988-1993. Í NAR, norrænu samstarfi áhugaleikfélaga, 1988-1993. Í nefnd á vegum menntamálaráðuneytis um menntastefnu til 2000 (listgreinar) 1990 og nefnd á vegum menntamálaráðuneytis um endurskoðun leiklistarlaga 1994. Formaður framkvæmdastjórnar Leiklistarráðs 1990-1994. Varamaður í stjórn TDN, Teater og dans i Norden, norrænu leiklistar- og dansnefndarinnar, 1997-2001. Gjaldkeri í stjórn Félags leikstjóra á Íslandi 1998-1999. Fulltrúi Reykjavíkurborgar í stjórn Sorpu 2002-2004. Í fjölmiðlanefnd menntamálaráðherra 2004–2005. Í starfshópi dómsmálaráðherra um starfsumhverfi vændis 2004–2006. Í stjórn Ísland – Panorama síðan 2006. Í auðlindanefnd iðnaðarráðherra 2006. Í umhverfisnefnd Norðurlandaráðs 2007–2008. Í Þjóðleikhúsráði síðan 2007. Í Þingvallanefnd 2007-2009. Í vatnalaganefnd iðnaðarráðherra 2008. Í starfshópi menntamálaráðherra um stöðu RÚV á auglýsingamarkaði 2008. Í menningarnefnd Norðurlandaráðs síðan 2008.

      Alþm. Reykv. 1999-2003, alþm. Reykv. n. 2003-2007, alþm. Reykv. s. 2007-2009 (Vg.).
      Vþm. Reykv. s. okt.-nóv. 2010 (Vg.).
      Umhverfisráðherra og ráðherra norrænna samstarfsmála 2009.
      Menntamálanefnd 1999-2009, umhverfisnefnd 1999-2009.
      Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2007-2009.

      Hefur samið leikgerðir og handrit ýmissa leiksýninga.
      Ritstjóri: Leiklistarblaðið (1988-1993).

Síðast breytt 04.11.2010. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.