Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Njáll Trausti Friðbertsson
2. þm. NA, S, NTF
Njáll Trausti Friðbertsson

   
Lúðvík Jósepsson

Lúðvík Jósepsson

Fæddur í Nesi í Norðfirði 16. júní 1914, dáinn 18. nóvember 1994. Foreldrar: Benedikt Jósep Gestsson (fæddur 13. október 1894, dáinn 22. mars 1969) sjómaður þar og Þórstína Elísa Þorsteinsdóttir (fædd 28. ágúst 1880, dáin 1. ágúst 1944) húsmóðir. Maki (28. ágúst 1936): Fjóla Steinsdóttir (fædd 15. október 1916, dáin 12. desember 1997) húsmóðir. Foreldrar: Steinn Snorrason og kona hans Steinunn Ísaksdóttir. Sonur: Steinar (1936).

Gagnfræðapróf Akureyri 1933.

Kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1934—1943. Starfaði að útgerð þar 1944—1948. Forstjóri Bæjarútgerðar Neskaupstaðar 1948—1952. Skipaður 24. júlí 1956 sjávarútvegs- og viðskiptamálaráðherra, lausn 4. desember 1958, en gegndi störfum til 23. desember. Skipaður 14. júlí 1971 sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra, lausn 2. júlí 1974, en gegndi störfum til 28. ágúst.

Bæjarfulltrúi í Neskaupstað 1938—1970, forseti bæjarstjórnar 1942—1943 og 1946—1956. Í milliþinganefnd í sjávarútvegsmálum 1942. Í stjórn Fiskimálasjóðs 1947—1953 og í bankaráði Útvegsbanka Íslands 1957—1971. Kosinn 1954 í togaranefnd og 1956 í milliþinganefnd í sjávarútvegsmálum. Fulltrúi á Genfar-ráðstefnu um réttarreglur á hafinu 1958, 1960 og 1975—1982. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1963 og 1976—1978. Kosinn 1966 í endurskoðunarnefnd laga um þingsköp Alþingis. Í stjórn Framkvæmdasjóðs 1966—1968. Í stjórn Atvinnujöfnunarsjóðs 1971—1972. Kosinn 1973 í neyðarráðstafananefnd vegna eldgossins á Heimaey. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1969. Formaður Alþýðubandalagsins 1977—1980. Í bankaráði Landsbanka Íslands frá 1980 til æviloka.

Landskjörinn alþingismaður (Suður-Múlasýslu) 1942—1946, 1949—1956 og 1959, alþingismaður Suður-Múlasýslu 1946—1949 og 1956—1959, alþingismaður Austurlands 1959—1979 (Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn, Alþýðubandalag).

Sjávarútvegs- og viðskiptamálaráðherra 1956—1958, sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra 1971—1974.

Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins 1961—1971 og 1975—1979.


Ritaði auk fjölda blaðagreina bókina: Landhelgismálið í 40 ár (1989).


Síðast breytt 05.02.2020.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.