Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Óttarr Proppé
11. þm. RS, Bf, ÓP
Óttarr Proppé

   
Ólafur G. Einarsson

Ólafur G. Einarsson (Ólafur Garðar)

      F. á Siglufirði 7. júlí 1932. For.: Einar Kristjánsson (f. 21. júlí 1898, d. 27. okt. 1960) lyfjasveinn þar, síðar forstjóri á Akureyri og síðast í Reykjavík og k. h. Ólöf Ísaksdóttir (f. 21. sept. 1900, d. 1. maí 1987) húsmóðir. K. (24. des. 1955) Ragna Bjarnadóttir (f. 21. nóv. 1931) húsmóðir. For.: Bjarni Bjarnason og k. h. Guðfinna Guðnadóttir. Dóttir: Ásta Ragnhildur (1968).
      Stúdentspróf MA 1953. Nám í læknisfræði 1953-1955. Lögfræðipróf HÍ 1960. Hdl. 1977.
      Sveitarstjóri í Garðahreppi 1960-1972. Skip. 30. apríl 1991 menntamálaráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl.
      Í hreppsnefnd Garðahrepps 1966-1975 og í bæjarstjórn Garðabæjar 1976-1978, oddviti hreppsnefndar 1972-1975, forseti bæjarstjórnar 1976-1978. Varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 1967-1978. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1969-1971 og 1980-1991, í framkvæmdastjórn flokksins 1981-1991. Umdæmisstjóri Rotary á Íslandi 1969-1970. Í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga 1971-1978. Í stjórn Brunamálastofnunar ríkisins 1968-1982. Í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins, síðar Byggðastofnunar 1974-1978 og 1983-1987. Formaður tryggingaráðs 1983-1987. Í stjórn Sjóminjasafns Íslands 1983-1987. Varaformaður stjórnar Hitaveitu Suðurnesja 1975-1981 og 1984-1988. Formaður Þingvallanefndar 1988-1991. Formaður íslensku sendinefndarinnar á fundum Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1974-1983. Í Norðurlandaráði 1983-1991. Varaformaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs 1983-1986, formaður 1986-1991. Í bankaráði Seðlabanka Íslands síðan 1998.

      Landsk. alþm. (Reykn.) 1971-1974, 1978-1979, 1983-1987, alþm. Reykn. 1974-1978, 1979-1983 og 1987-1999 (Sjálfstfl.).
      Menntamálaráðherra 1991-1995.
      Forseti Alþingis 1995-1999.
      Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins 1979-1991.


Síðast breytt 16.06.2003. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.