|
|
 Steingrímur J. Sigfússon F. á Gunnarsstöðum í Þistilfirði 4. ágúst 1955. For.: Sigfús A. Jóhannsson (f. 5. júní 1926, d. 2. ágúst 2007) bóndi þar og Sigríður Jóhannesdóttir (f. 10. júní 1926, d. 15. okt. 2007) húsmóðir. M. (18. jan. 1985) Bergný Marvinsdóttir (f. 4. des. 1956) læknir. For.: Marvin Frímannsson og Ingibjörg Helgadóttir. Börn: Sigfús (1984), Brynjólfur (1988), Bjartur (1992), Vala (1998).
Stúdentspróf MA 1976. B.Sc.-próf í jarðfræði HÍ 1981. Próf í kennslu- og uppeldisfræði HÍ 1982.
Vörubifreiðarstjóri á sumrum 1978-1982. Við jarðfræðistörf og jafnframt íþróttafréttamaður hjá sjónvarpi 1982-1983. Landbúnaðar- og samgönguráðherra 28. sept. 1988 til 30. apríl 1991. Fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 1. febr. 2009 til 10. maí 2009. Fjármálaráðherra 10. maí 2009 til 31. des. 2011. Efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2011-2012. Fór með iðnaðarráðuneytið í fæðingarorlofi Katrínar Júlíusdóttur 6. júlí - 1. september 2012. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 1. september 2012, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.
Fulltrúi nemenda í skólaráði MA 1975-1976. Í Stúdentaráði 1978-1980. Hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum innan ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar. Í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna 1983-1987. Kjörinn 1984 í samstarfsnefnd með Færeyingum og Grænlendingum um sameiginleg hagsmunamál. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1984 og 1986. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1985-1988 og 1991-1995. Varaformaður Alþýðubandalagsins 1989-1995. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1991 og 2007. Formaður flokkahóps vinstri sósíalista í Norðurlandaráði 1998-2000. Formaður norræna ráðsins um málefni fatlaðra 1999-2000. Formaður í jafnréttisnefnd Evrópuráðsþingsins 2008-2009. Formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs frá stofnun flokksins í febrúar 1999 til febrúar 2013. Í stjórnarskrárnefnd 2005-2007.
Alþm. Norðurl. e. 1983-2003 (Alþýðubandalagið, Óháðir, Vinstri hreyfingin - grænt framboð), alþm. Norðaust. síðan 2003 (Vinstri hreyfingin - grænt framboð).
Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins 1987-1988.
Landbúnaðar- og samgönguráðherra 1988-1991, fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2009, fjármálaráðherra 2009-2011, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2011-2012, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 2012-2013.
4. varaforseti síðan 2013. Sjávarútvegsnefnd 1991-1998 (form. 1995-1998), efnahags- og viðskiptanefnd 1991-1999 og 2013-, félagsmálanefnd 1999-2003, utanríkismálanefnd 1999-2009, sérnefnd um stjórnarskrármál 2004-2005.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1991-1995, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1996-2005, 2006-2007 og 2013-, Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2007-2009, nefnd Evrópuráðsþingsins um jöfn tækifæri kvenna og karla 2008-2009 (form.).
Ritstörf: Við öll – íslenskt velferðarsamfélag á tímamótum, 2006. Róið á ný mið, sóknarfæri íslensks sjávarútvegs, 1996. Hefur ritað fjölda blaða- og tímaritsgreina.
|
Síðast breytt 14.06.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur |
|
|
|

|