Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Kristrún Frostadóttir
3. þm. RS, Sf, KFrost
Kristrún Frostadóttir

   
Kristján Þór Júlíusson

Kristján Þór Júlíusson

Fæddur á Dalvík 15. júlí 1957. Foreldrar: Júlíus Kristjánsson (fæddur 16. september 1930) forstjóri og Ragnheiður Sigvaldadóttir (fædd 5. maí 1934) skjalavörður. Maki: Guðbjörg Baldvinsdóttir Ringsted (fædd 12. janúar 1957) myndlistarmaður. Foreldrar: Baldvin Gunnar Sigurðsson Ringsted og Ágústa Sigurðardóttir Ringsted. Börn: María (1984), Júlíus (1986), Gunnar (1990), Þorsteinn (1997).

Stúdentspróf MA 1977. Skipstjórnarpróf (1. og 2. stig) frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1978. Nám í íslensku og almennum bókmenntum við HÍ 1981-1984. Kennsluréttindapróf HÍ 1984.

Stýrimaður og skipstjóri á skipum frá Dalvík 1978-1981 og á sumrin 1981-1985. Kennari við Stýrimannaskólann á Dalvík 1981-1986. Kennari við Dalvíkurskóla 1984-1986. Bæjarstjóri Dalvíkur 1986-1994. Í stjórn Útgerðarfélags Dalvíkinga hf. 1987-1990. Formaður stjórnar Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. 1987-1992. Í stjórn Söltunarfélags Dalvíkur hf. 1987-1993. Í stjórn Sæplasts hf. 1988-1994. Bæjarstjóri Ísafjarðar 1994-1997. Í stjórn Togaraútgerðar Ísafjarðar hf. 1996-1997. Formaður stjórnar Samherja hf. 1996-1998. Bæjarstjóri Akureyrar 1998-2006. Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar 1998-2007. Í stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands 1999-2008. Í stjórn Landsvirkjunar 1999-2007. Í stjórn Fjárfestingarbanka atvinnulífsins 1999-2000. Í Ferðamálaráði Íslands 1999-2003. Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Norðurlands 2000-2007. Í stjórn Fasteignamats ríkisins 2000-2007. Í stjórn Íslenskra verðbréfa 2002-2009. Heilbrigðisráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017. Mennta- og menningarmálaráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Ráðherra norrænna samstarfsmála 24. janúar til 30. nóvember 2017. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021.

Í ráðgjafarnefnd Tölvuþjónustu sveitarfélaga 1988-1990. Í stjórn Fjórðungssambands Norðlendinga 1989-1990. Í héraðsráði Eyjafjarðar 1990-1994. Formaður stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga 1994-1997. Formaður stjórnar Eyþings 1998-2002. Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 1998-2007. Í bæjarstjórn Akureyrar 1998-2009. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 2002-2013. Formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins 2002-2009. 2. varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2012-2013.

Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2007-2021 (Sjálfstæðisflokkur).

Heilbrigðisráðherra 2013-2017. Mennta- og menningarmálaráðherra og ráðherra norrænna samstarfsmála 2017. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2017-2021.

Fjárlaganefnd 2007-2013, iðnaðarnefnd 2007-2009, umhverfisnefnd 2009-2011.

Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2007-2009, Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2009-2013.



Síðast breytt 27.01.2022.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.