Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Sigmar Guðmundsson
12. þm. SV, V, SGuðm
Sigmar Guðmundsson

   
Ragnheiður E. Árnadóttir

Ragnheiður E. Árnadóttir

Fædd í Reykjavík 30. september 1967. Foreldrar: Árni Þ. Þorgrímsson (fæddur 6. ágúst 1931, dáinn 18. nóvember 2019) flugumferðarstjóri og Hólmfríður Guðmundsdóttir (fædd 22. júní 1928, dáin 6. febrúar 2003) aðalbókari. Maki: Guðjón Ingi Guðjónsson (fæddur 22. júlí 1964) framkvæmdastjóri. Foreldrar: Guðjón M. Guðmundsson og Sveinbjörg Laustsen. Synir: Árni Þór (2002), Helgi Matthías (2008). Stjúpdætur, dætur Guðjóns Inga: Gígja Sigríður (1989), Karítas Sveina (1994).

Stúdentspróf Kvennaskólanum í Reykjavík 1987. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1991. MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum 1994.

Starfsmaður Útflutningsráðs Íslands 1995-1998, aðstoðarviðskiptafulltrúi 1995-1996, viðskiptafulltrúi í New York 1996-1997 og verkefnisstjóri í Reykjavík 1997-1998. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra 1998-2005. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra 2005-2006. Aðstoðarmaður forsætisráðherra 2006-2007. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017.

Í nefnd um nýtt fæðingarorlof 1999. Í samninganefnd ríkisins 1999-2005. Varamaður í jafnréttisráði 2000-2005. Varamaður í bankaráði Norræna fjárfestingarbankans 2002-2006. Í viðræðunefnd um varnarmál 2005-2006. Í stjórn Iceland Naturally 2005-2007 og í stjórn Iceland Naturally Europe 2006-2007. Í fjölskyldunefnd ríkisstjórnarinnar 2005-2007. Í Þingvallanefnd 2009-2013.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2007-2009, alþingismaður Suðurkjördæmis 2009-2016 (Sjálfstæðisflokkur).

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra 2013-2017.

Formaður þingflokks sjálfstæðismanna 2010-2012.

Efnahags- og skattanefnd 2007-2009, iðnaðarnefnd 2007-2009, utanríkismálanefnd 2007-2009, 2010 og 2011-2013, viðskiptanefnd 2009-2010, þingskapanefnd 2011-2013.

Íslandsdeild NATO-þingsins 2007-2013 (formaður 2007-2009).



Síðast breytt 24.11.2019.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.