Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Eyjólfur Ármannsson
6. þm. NV, Flf, EÁ
Eyjólfur Ármannsson

   
Eygló Harðardóttir

Eygló Harðardóttir

Fædd í Reykjavík 12. desember 1972. Foreldrar: Hörður Þ. Rögnvaldsson (fæddur 7. apríl 1955) verktaki og Svanborg E. Óskarsdóttir (fædd 9. apríl 1956) framkvæmdastjóri og kennari. Maki: Sigurður E. Vilhelmsson (fæddur 29. maí 1971) framhaldsskólakennari. Foreldrar: Vilhelm G. Kristinsson og Ásgerður Ágústsdóttir. Dætur: Hrafnhildur Ósk (2000), Snæfríður Unnur (2006).

Stúdentspróf FB 1992. Fil.kand.-próf í listasögu frá Stokkhólmsháskóla 2000. Framhaldsnám í viðskiptafræði við HÍ síðan 2007.

Framkvæmdastjóri Þorsks á þurru landi ehf. 2001-2009. Skrifstofustjóri Hlíðardals ehf. 2003-2004. Viðskiptastjóri Tok hjá Ax hugbúnaðarhúsi hf. 2004-2006. Framkvæmdastjóri Nínukots ehf. 2006-2008. Verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands 2008. Félags- og húsnæðismálaráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017. Samstarfsráðherra Norðurlanda 16. ágúst 2013 til 11. janúar 2017.

Í stjórn Þorsks á þurru landi ehf. 2001-2009. Í skólamálaráði Vestmannaeyja 2003-2004. Varamaður í félagsmálaráði Vestmannaeyja 2003-2005. Ritari í stjórn kjördæmissambands framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi 2003-2007. Í stjórn Nýsköpunarstofu Vestmannaeyja 2003-2006. Í stjórn Náttúrustofu Suðurlands 2003-2006. Í stjórn IceCods á Íslandi ehf. 2003-2013. Í miðstjórn Framsóknarflokksins síðan 2003. Í stjórn Visku, fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar, 2004-2006 og 2008-2009. Gjaldkeri Framsóknarfélags Vestmannaeyja 2004-2010. Fulltrúi í foreldraráði Grunnskóla Vestmannaeyja 2007-2008. Ritari í stjórn Landssambands Framsóknarkvenna 2007-2009. Ritari Framsóknarflokksins síðan 2009. Í samráðshóp um húsnæðisstefnu 2011. Formaður verðtryggingarnefndar, nefndar sem kanni forsendur verðtryggingar á Íslandi, síðan 2010.

Alþingismaður Suðurkjördæmis 2008-2013, alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2013-2017 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Suðurkjördæmis febrúar-mars 2006 (Framsóknarflokkur).

Félags- og húsnæðismálaráðherra 2013-2017, samstarfsráðherra Norðurlanda 2013-2017.

Heilbrigðisnefnd 2008-2009, iðnaðarnefnd 2008-2009, umhverfisnefnd 2008-2009, menntamálanefnd 2009-2011, viðskiptanefnd 2009-2011, þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010, allsherjar- og menntamálanefnd 2011 og 2017, velferðarnefnd 2011-2012, efnahags- og viðskiptanefnd 2012-2013.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2017.


Lausapenni hjá Vaktinni, Vestmannaeyjum. Hefur skrifað fasta pistla í Bændablaðið og greinar í ýmis blöð.


Síðast breytt 30.10.2017.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.