F. í Reykjavík 28. okt. 1972. For.: Steingrímur Hermannsson (f. 22. júní 1928, d. 1. febr. 2010) verkfræðingur, alþm. og ráðherra, sonur Hermanns Jónassonar (f. 25. des. 1896, d. 22. jan. 1976) alþm. og ráðherra, og Guðlaug Edda Guðmundsdóttir (f. 21. jan. 1937) húsmóðir, ritari og flugfreyja. M. 1. Marta María Jónsdóttir (f. 31. júlí 1974) myndlistarkona. Þau skildu. For.: Jón Gunnar Skúlason og Hildigunnur Ólafsdóttir. M. 2. Alexía Björg Jóhannesdóttir (f. 17. febr. 1977) leikkona. For.: Jóhannes Björgvin Björgvinsson og Sigríður Hafdís Melsted. Sonur: Jóhannes Hermann (2009). Dóttir Guðmundar og Sigríðar Liv Ellingsen: Edda Liv (2004).
Stúdentspróf MR 1992. BA-próf í íslensku og heimspeki HÍ 1995. Framhaldsnám í heimspeki við kaþólska háskólann í Leuven, Belgíu, 1996-1997. Meistarapróf í heimspeki frá Uppsalaháskóla í Svíþjóð 1998. Meistarapróf í heimspeki frá Oxfordháskóla í Bretlandi 2001. Stundar framhaldsnám í hagfræði við HÍ.
Blaðamaður meðfram námi á Tímanum og um stundarsakir á DV. Starfandi tónlistarmaður í hljómsveitinni Skárren ekkert, síðar Ske, frá 1992. Dagskrárgerðarmaður í hlutastarfi á Ríkisútvarpinu 1998-2005. Starfsmaður í almannatengslum á auglýsingastofunni ABX 2002. Blaðamaður á Fréttablaðinu 2003-2004, pistlahöfundur þar 2003-2009. Dagskrárgerðarmaður á Skjá 1 og sjónvarpsstöðinni Sirkus 2004-2006. Aðstoðarmaður borgarstjóra 2007-2008. Sjálfstæður atvinnurekandi á sviði textagerðar og hugmyndasmíði fyrir auglýsingar, almannatengsl og ráðgjöf af ýmsu tagi 2004-2009.
Formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands 1995-1996, fulltrúi stúdenta í háskólaráði 1994-1996. Í stjórn Iceland Naturally, Norður-Ameríku 2007-2009. Í stjórn Landverndar 2008-2009, í nefnd um eflingu græna hagkerfisins 2010-2013, formaður verkefnis um notendastýrða persónulega þjónustu frá 2011. Formaður Bjartrar framtíðar síðan 2012.
Alþm. Norðvest. 2009-2013 (Framsóknarflokkur, utan flokka), alþm. Suðvest. síðan 2013 (Björt framtíð).
Vþm. Suðvest. okt. 2007, sept. og okt. 2008 (Samfylkingin).
Félags- og tryggingamálanefnd 2009-2011, samgöngunefnd 2009-2011, velferðarnefnd 2011-2013, efnahags- og viðskiptanefnd 2013-.
Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu 2013-.
Síðast breytt 07.06.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur