F. á Akureyri 6. mars 1961. For.: Rúnar H. Sigmundsson (f. 8. apríl 1933) viðskiptafræðingur og Helga Sigfúsdóttir (f. 30. des.1935) húsmóðir. Mágur Sigfúsar Karlssonar vþm. M. 1. Bára Aðalsteinsdóttir (f. 24. febr.1959) þroskaþjálfi. Þau skildu. For.: Aðalsteinn Gíslason og Kristín Jóhanna Hólm. M. 2. Elín Sveinsdóttir (f. 25. febr. 1963) upptöku- og útsendingarstjóri. For.: Sveinn Viðar Jónsson og Auður Vésteinsdóttir. Börn Sigmundar og Báru: Eydís Edda (f. 1985, d. 2009), Oddur (1987). Börn Sigmundar og Elínar: Birta (1990), Rúnar (1992), Ernir (1996), Auður (2004).
Stúdentspróf MA 1981. Ýmis fjölmiðlanámskeið í Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjunum 1981-1986.
Blaðamaður á Vísi 1981 og DV 1981-1983. Ritstjórnarfulltrúi á Helgarpóstinum 1983-1985. Þáttastjórnandi hjá Ríkissjónvarpinu 1985-1986. Fréttamaður og síðar varafréttastjóri á Stöð 2 1987-2001. Ritstjóri DV 2001-2003. Þáttastjórnandi á Skjá 1 2003-2004. Fréttaritstjóri á Fréttablaðinu 2004-2005. Fréttastjóri á Stöð 2 2005-2007 og forstöðumaður fréttasviðs á sömu stöð 2007-2009.
Í stjórn Blaðamannafélags Íslands 1988-1990. Í stjórn Dags íslenskrar tungu 1996-2000. Formaður verkefnisstjórnar um byggðaáætlun Eyjafjarðar 2001-2004. Formaður stjórnar Leikfélags Akureyrar 2003-2009.