Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Orri Páll Jóhannsson
10. þm. RS, Vg, OPJ
Orri Páll Jóhannsson

   
Oddný G. Harðardóttir

Oddný G. Harðardóttir

Fædd í Reykjavík 9. apríl 1957. Foreldrar: Hörður Sumarliðason (fæddur 4. febrúar 1930, dáinn 13. janúar 2012) járnsmiður og Agnes Ásta Guðmundsdóttir (fædd 26. október 1933, dáin 30. nóvember 1982) verslunarmaður. Maki: Eiríkur Hermannsson (fæddur 1. janúar 1951) fyrrverandi fræðslustjóri Reykjanesbæjar. Foreldrar: Hermann Eiríksson og Ingigerður Sigmundsdóttir. Dætur: Ásta Björk (1984), Inga Lilja (1986).

Stúdentspróf frá aðfaranámi KHÍ 1977. B.Ed.-próf frá KHÍ 1980. Stærðfræðinám til kennsluréttinda á framhaldsskólastigi HÍ 1991. MA-próf í uppeldis- og menntunarfræði HÍ 2001.

Grunnskólakennari 1980-1985. Kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1985-1993, deildarstjóri stærðfræðideildar 1988-1990, sviðsstjóri stærðfræði- og raungreinasviðs 1990-1993. Kennari við Menntaskólann á Akureyri 1993-1994. Aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1994-2003. Vann við skipulag og stjórnun vettvangsnáms á vegum Endurmenntunar HÍ fyrir starfandi stjórnendur í framhaldsskólum 2001-2002. Verkefnisstjóri í menntamálaráðuneytinu 2003-2004. Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja 2005. Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs 2006-2009. Fjármálaráðherra 31. desember 2011 til 1. september 2012. Fór jafnframt með iðnaðarráðuneytið 24. febrúar til 6. júlí 2012. Fjármála- og efnahagsráðherra 1. september til 1. október 2012.

Í stjórn Sambands iðnmenntaskóla 1994-1999. Í stjórn samstarfsnefndar atvinnulífs og skóla 1995-1998. Í stuðningshópi á vegum norrænu ráðherranefndarinnar um fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum 1997-1999. Formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum 2002-2003. Í stjórn Kennarasambands Íslands 2002-2003. Oddviti lista Nýrra tíma í Sveitarfélaginu Garði 2006. Formaður skólanefndar Garðs 2006-2010. Í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2006-2009, formaður 2007-2008. Í stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja 2006-2009, formaður 2007-2008. Í stjórn Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum 2006-2009. Í stjórn Brunavarna Suðurnesja 2008-2009. Í stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna 2007-2009. Í skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar 2007-2009. Í skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurnesja 2008-2009. Í Þingvallanefnd 2013-2017, 2018 og 2022-. Formaður Samfylkingarinnar 2016. Í samráðsnefnd um veiðigjöld 2017-2018.

Alþingismaður Suðurkjördæmis síðan 2009 (Samfylkingin).

Fjármálaráðherra 2011-2012, iðnaðarráðherra 2012, fjármála- og efnahagsráðherra 2012.

1. varaforseti Alþingis síðan 2021.

Formaður þingflokks Samfylkingarinnar 2011-2012, 2012-2013, 2016 og 2017-2021.

Fjárlaganefnd 2009-2011 (formaður 2010-2011), 2013-2017, 2017 og 2021, menntamálanefnd 2009-2011 (formaður 2009-2010), samgöngunefnd 2009-2010, heilbrigðisnefnd 2009, þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010, allsherjar- og menntamálanefnd 2011-2012, þingskapanefnd 2011-2012 og 2019-2021, velferðarnefnd 2013 og 2021-2023, kjörbréfanefnd 2016, efnahags- og viðskiptanefnd 2017-2021 og 2023-.

Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2011-2012, Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2013-2016, þingmannanefnd Íslands og ESB 2017, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2017, 2017-2021 og 2021-.



Síðast breytt 13.09.2023.


www.oddny.is
Twitter
Facebook

Símanúmer

Á dvalarstað: 422-7048
Farsími: 863-4321

Þingstörf
8. þm. SU , Samf., OH

Embætti:

1. varaforseti
Alþingis

Nefndasetur:

Efnahags- og viðskiptanefnd
Forsætisnefndin

Íslandsdeild Norðurlandaráðs

Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.