Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Karl Garðarsson
8. þm. RS, F, KG
Karl Garðarsson

   
Jónína Rós Guðmundsdóttir

Jónína Rós Guðmundsdóttir

      F. í Hafnarfirði 6. júlí 1958. For.: Guðmundur Guðmundsson (f. 5. júní 1930, d. 21. mars 1984) kaupmaður og Anna Helene Christensen (f. 29. apríl 1935) verslunarmaður og starfsstúlka á Sólvangi. M. (28. des. 1985) Bergur Jónsson (f. 17. okt. 1960) hrossaræktandi, tamningamaður og reiðkennari. Þau skildu. For.: Jón Bergsson og Elsa Guðbjörg Þorsteinsdóttir. Börn: Guðbjörg Anna (1984), Guðmundur Þorsteinn (1988), Berglind Rós (1995). Stjúpsonur, sonur Bergs: Jón Matthías (1980).
      Stúdentspróf Flensborg 1978. B.Ed.-próf KHÍ 1982. BA-próf í sérkennslufræðum KHÍ 1993.
      Vann í sumarbúðum KFUM og KFUK á mennta- og háskólaárum og einnig við verslunarstörf á sumrin og með námi. Kennari við Hallormsstaðaskóla 1982-2001. Kennari við Menntaskólann á Egilsstöðum 2001-2009.
      Í barnaverndarnefnd Héraðs og Borgarfjarðar eystri 1994-1998. Í stjórn Soroptimistaklúbbs Austurlands 2004-2006. Formaður Samfylkingarfélags Héraðs og Borgarfjarðar 2004-2006. Í fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs 2004-2006. Í stjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi 2005-2008. Í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs 2006-2009. Formaður skipulags- og bygginganefndar Fljótsdalshéraðs 2006. Formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs 2007-2009. Formaður svæðisráðs um málefni fatlaðra 2007-2010. Í Umferðarráði frá 2008. Formaður Fjárafls, atvinnu- og þróunarsjóðs Fljótsdalshéraðs, 2006-2009. Formaður stjórnar Vísindagarðsins ehf., Egilsstöðum, 2008-2010. Formaður samráðsnefndar um málefni fatlaðs fólks frá 2011.

      Alþm. Norðaust. 2009-2013 (Samf.).
      Iðnaðarnefnd 2009-2010, menntamálanefnd 2009-2010 og 2010-2011, viðskiptanefnd 2009-2010, félags- og tryggingamálanefnd 2010-2011, heilbrigðisnefnd 2010-2011, saksóknarnefnd 2010-2012, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2011-2012, velferðarnefnd 2011-2013, allsherjar- og menntamálanefnd 2012, atvinnuveganefnd 2012-2013.
      Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2009-2011, Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2011-2013, Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2012-2013.


Síðast breytt 08.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.