F. í Reykjavík 23. apríl 1972. For.: Ólafur Magnús Schram (f. 25. maí 1950), bróðir Ellerts B. Schrams alþm., framkvæmdastjóri og Marín Magnúsdóttir (f. 7. des. 1950) framkvæmdastjóri. M. Herdís Hallmarsdóttir (f. 10. sept. 1972) hæstaréttarlögmaður. For.: Hallmar Sigurðsson og Sigríður Sigþórsdóttir. Sonur: Hallmar Orri (1999). Stjúpdóttir, dóttir Herdísar: Sigríður María Egilsdóttir (1993).
Stúdentspróf MH 1992. BA-próf í sagnfræði HÍ 1997. MBA-próf HR 2003.
Íþróttafréttamaður hjá ríkissjónvarpinu 1997-1999. Framkvæmdastjóri hjá KR Sporti 1999-2000. Verkefnisstjóri hjá Símanum 2000-2003. Stofnandi og framkvæmdastjóri hjá Birtu vefauglýsingum 2003-2004. Stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík 2004-2006. Sölu- og markaðsstjóri húðvara hjá Bláa lóninu 2006-2009.
Alþm. Suðvest. 2009-2013 (Samf.).
Formaður þingflokks Samfylkingarinnar 2012.
Efnahags- og skattanefnd 2009-2011, samgöngunefnd 2009, umhverfisnefnd 2009-2010, viðskiptanefnd 2009-2011, þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010, heilbrigðisnefnd 2010, iðnaðarnefnd 2010-2011, atvinnuveganefnd 2011-2012, efnahags- og viðskiptanefnd 2011-2013, í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2012, þingskapanefnd 2012-2013.
Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2011-2012.
Síðast breytt 29.04.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur