Eiður Guðnason

Eiður Guðnason

Þingseta

Alþingismaður Vesturlands 1978–1983 og 1987–1993, landskjörinn alþingismaður (Vesturlands) 1983–1987 (Alþýðuflokkur).

Umhverfisráðherra 1991–1993. Ráðherra norrænna samstarfsmála 1991–1993.

Formaður þingflokks Alþýðuflokksins 1983–1991.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur í Reykjavík 7. nóvember 1939, dáinn 30. janúar 2017. Foreldrar: Guðni Guðmundsson (fæddur 14. júní 1904, dáinn 17. nóvember 1947) verkamaður þar og kona hans Þóranna Lilja Guðjónsdóttir (fædd 4. júní 1904, dáin 17. mars 1970) húsmóðir. Maki (16. mars 1963): Eygló Helga Haraldsdóttir (fædd 19. janúar 1942, dáin 13. maí 2015) píanókennari. Foreldrar: Haraldur Gíslason og kona hans Þórunn Guðmundsdóttir. Börn: Helga Þóra (1963), Þórunn Svanhildur (1969), Haraldur Guðni (1972).

Stúdentspróf MR 1959. Nám í stjórnmálafræði við Delaware-háskóla í Bandaríkjunum 1960–1961. BA-próf í ensku og enskum bókmenntum HÍ 1967. Löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi úr ensku 1962.

Blaðamaður og síðar ritstjórnarfulltrúi við Alþýðublaðið 1962–1967. Yfirþýðandi, fréttamaður og fulltrúi dagskrárstjóra frétta- og fræðsludeildar Sjónvarps frá 1967 til 1. desember 1978. Skipaður 30. apríl 1991 umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 14. júní 1993. Sendiherra 1993–2009.

Í flokksstjórn Alþýðuflokksins 1964–1969 og 1978–1993. Formaður Blaðamannafélags Íslands 1971–1972. Í útvarpsráði 1978–1987. Í Norðurlandaráði 1978–1980 og 1982–1990, formaður Íslandsdeildar ráðsins 1978–1979 og jafnframt í forsætisnefnd þess. Kosinn 1984 í samstarfsnefnd með Færeyingum og Grænlendingum um sameiginleg hagsmunamál. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1985–1986. Fulltrúi Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1980. Fulltrúi Íslands á þingi Evrópuráðsins 1989–1991. Formaður stjórnar Sementsverksmiðju ríkisins 1989–1991. Í Evrópustefnunefnd 1989–1991. Í þingmannanefnd EFTA 1993.

Alþingismaður Vesturlands 1978–1983 og 1987–1993, landskjörinn alþingismaður (Vesturlands) 1983–1987 (Alþýðuflokkur).

Umhverfisráðherra 1991–1993. Ráðherra norrænna samstarfsmála 1991–1993.

Formaður þingflokks Alþýðuflokksins 1983–1991.

Birti greinar um íslensk málefni í innlendum og erlendum tímaritum og blöðum og samdi og þýddi útvarpsefni. Vann einnig með öðrum að gerð kvikmynda. Hlaut verðlaun úr Móðurmálssjóði Björns Jónssonar ritstjóra 1974.

Æviágripi síðast breytt 23. september 2019.

Áskriftir