Rósa Björk Brynjólfsdóttir

Rósa Björk Brynjólfsdóttir

Þingseta

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2016–2021 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð, utan flokka, Samfylkingin).

Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis júní–júlí 2013, janúar–febrúar og apríl 2015, janúar og apríl 2016 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð). Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður febrúar–mars 2022, júní 2022 og janúar–febrúar 2023 (Samfylkingin).

Æviágrip

Fædd í Hafnarfirði 9. febrúar 1975. Foreldrar: J. Brynjólfur Hólm Ásþórsson (fæddur 4. febrúar 1954) smiður og Sigrún Baldursdóttir (fædd 11. apríl 1956) ritari. Maki: Kristján Guy Burgess (fæddur 31. mars 1973) framkvæmdastjóri. Foreldrar: Noel Burgess og Lára Ingibjörg Ólafsdóttir. Börn: Bjartur (2012), Snæfríður (2013). Dóttir Rósu Bjarkar og Ómars Jabalis: Amíra Snærós (2003).

Stúdentspróf MR 1995. DELF-próf í frönsku frá Université de Stendhal 1996. Leiðsögumannapróf frá Leiðsöguskóla Íslands 1998, gönguleiðsagnarpróf 2003. BA-próf í frönsku og fjölmiðlafræði HÍ 2000.

Leiðsögumaður á hálendi Íslands 1998–2003 og ásamt öðrum störfum 2005–2009. Dagskrárgerðarkona á RÚV, Rás 2, Rás 1, NFS og Stöð 2 og fréttakona á mbl.is 2002–2007. Fréttaritstjóri hjá sjónvarpsstöðinni France 24 2007–2008. Fréttaritstjóri og fréttaritari á Íslandi fyrir Al Jazeera, TF1, BBC, CBC, NRK, France 24 og fleiri erlendar fréttastöðvar 2008–2009. Fréttakona á fréttastofu RÚV 2009–2010. Fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins 2010–2014. Framkvæmdastjóri þingflokks VG 2015–2016. Ritstjóri 19. júní 2005 og 2006.

Í stjórn Kvenréttindafélags Íslands 2003–2006. Í stjórn Barnaheimilisins Óss 2006–2007. Í stjórn VG síðan 2015.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2016–2021 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð, utan flokka, Samfylkingin).

Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis júní–júlí 2013, janúar–febrúar og apríl 2015, janúar og apríl 2016 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð). Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður febrúar–mars 2022, júní 2022 og janúar–febrúar 2023 (Samfylkingin).

Efnahags- og viðskiptanefnd 2017, utanríkismálanefnd 2017 og 2017–2021, umhverfis- og samgöngunefnd 2017–2019, atvinnuveganefnd 2019–2020.

Þingmannanefnd Íslands og ESB 2017, Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2017–2021 (formaður 2017–2021).

Æviágripi síðast breytt 20. febrúar 2023.

Áskriftir