Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
  • Embætti: Utanríkisráðherra
  • Ráðuneyti:Utanríkisráðuneytið
  • Kjördæmi: Norðvesturkjördæmi
  • Þingflokkur: Sjálfstæðisflokkur

Þingseta

Alþingismaður Norðvesturkjördæmis síðan 2016 (Sjálfstæðisflokkur).

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2017–2021, dómsmálaráðherra 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 2021–2022. Utanríkisráðherra 2022–2023. Fjármála- og efnahagsráðherra 2023–2024. Utanríkisráðherra síðan 2024.

Æviágrip

Fædd á Akranesi 4. nóvember 1987. Foreldrar: Gylfi R. Guðmundsson (fæddur 16. mars 1956) þjónustustjóri, sonur Jónu Valgerðar Kristjánsdóttur alþingismanns, systursonur Guðjóns A. Kristjánssonar alþingismanns, og Fjóla Katrín Ásgeirsdóttir (fædd 28. maí 1957) sjúkraliði. Maki: Hjalti Sigvaldason Mogensen (fæddur 28. maí 1984) lögmaður. Foreldrar: Sigvaldi Þorsteinsson og Kristín I. Mogensen. Börn: Marvin Gylfi (2012), Kristín Fjóla (2016).

Skiptinám á vegum AFS í Vínarborg 2005–2006. Stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 2007. BA-próf í lögfræði HR 2010. Erasmus-skiptinám við Universität Salzburg vorönn 2011. ML-próf í lögfræði HR 2012.

Lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 2011–2012. Framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 2013–2014. Stundakennari í stjórnskipunarrétti við HR 2013–2015. Aðstoðarmaður innanríkisráðherra 2014–2016. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 11. janúar 2017 til 27. nóvember 2021 og dómsmálaráðherra 14. mars til 6. september 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Utanríkisráðherra 1. febrúar 2022 til 14. október 2023. Fjármála- og efnahagsráðherra 14. október 2023 til 9. apríl 2024. Utanríkisráðherra síðan 9. apríl 2024.

Í stjórn Þórs, félags ungra Sjálfstæðismanna á Akranesi, 2007–2010, formaður 2008–2009. Í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna 2007–2009. Í umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar 2008. Í stjórn Lögréttu, félags laganema við HR, 2009–2010. Ritstjóri tímarits Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík, 2009–2010. Í umhverfis- og samgöngunefnd Sjálfstæðisflokksins frá 2016. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins síðan 2018.

Alþingismaður Norðvesturkjördæmis síðan 2016 (Sjálfstæðisflokkur).

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2017–2021, dómsmálaráðherra 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 2021–2022. Utanríkisráðherra 2022–2023. Fjármála- og efnahagsráðherra 2023–2024. Utanríkisráðherra síðan 2024.

Æviágripi síðast breytt 10. apríl 2024.

Áskriftir