Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
  • Kjördæmi: Reykjavíkurkjördæmi norður
  • Þingflokkur: Viðreisn

Þingseta

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður síðan 2020 (Viðreisn).

Æviágrip

Fædd í Reykjavík 23. maí 1978. Foreldrar: Gunnlaugur A. Jónsson (fæddur 28. apríl 1952) prófessor og Guðrún Helga Brynleifsdóttir (fædd 22. júní 1954) hæstaréttarlögmaður. Maki: Ágúst Ólafur Ágústsson (fæddur 10. mars 1977) alþingismaður. Þau skildu. Foreldrar: Kolbrún Ingólfsdóttir og Ágúst Einarsson alþingismaður. Dætur: Elísabet Una (2002), Kristrún (2005), María Guðrún (2012).

Stúdentspróf MR 1998. Cand. juris HÍ 2005. LL.M.-gráða (Master of Laws) frá Columbia University í Bandaríkjunum 2011.

Vann við blaðamennsku á DV á háskólaárum. Aðstoðarsaksóknari og deildarstjóri ofbeldisbrotadeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 2007–2008. Aðstoðarmaður dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur 2008–2009. Vann við rannsóknarstörf í Háskóla Íslands, EDDA – Öndvegissetur 2012–2013. Aðstoðarsaksóknari hjá ríkissaksóknara 2013–2015. Deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst 2015–2017. Aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra 2017. Saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara 2018–2020.

Í stúdentaráði Háskóla Íslands 2000–2002. Oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta 2002. Í skólanefnd Menntaskólans í Reykjavík 2004–2005. Ritari stjórnar Kvennaathvarfsins 2007–2008. Í stjórn landsnefndar Unifem á Íslandi 2007–2008. Í fagráði Þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrotamála 2015–2017. Í stjórn Bjarkahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis 2017.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður síðan 2020 (Viðreisn).

Allsherjar- og menntamálanefnd 2020–2021, umhverfis- og samgöngunefnd 2021–.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2021–.

Ritstjóri: Ritstjóri Lagakróka, tímarits Íslandsdeildar ELSA, 2001. Í ritnefnd Úlfljóts, tímarits laganema, 1999–2000. Í ritstjórn 19. júní, tímarits Kvenréttindafélagsins, 2002.

Æviágripi síðast breytt 25. janúar 2022.

Áskriftir