Páll Melsteð

Páll Melsteð

Þingseta

Konungkjörinn alþingismaður 1847–1849. Þjóðfundarmaður 1851.

Aðstoðarmaður Bardenfleths konungsfulltrúa á Alþingi 1845. Konungsfulltrúi á Alþingi 1849–1859, einnig skipaður konungsfulltrúi á þingi 1861, en andaðist fyrir þing.

Forseti Þjóðfundarins 1851.

    Þingstörf

    Æviágrip

    Fæddur á Völlum í Svarfaðardal 31. mars 1791, dáinn 9. maí 1861. Foreldrar: Þórður Jónsson (fæddur 1741, dáinn 26. september 1814) prestur þar og 2. kona hans Ingibjörg Jónsdóttir (fædd 1761, dáin 15. júní 1797) húsmóðir. Faðir Páls alþingismanns og Sigurðar alþingismanns Melsteðs, tengdafaðir Stefáns Stephensens alþingismanns. Maki 1 (2. nóvember 1815): Anna Sigríður Stefánsdóttir Melsteð (fædd 20. maí 1790, dáin 8. júní 1844) húsmóðir. Foreldrar: Stefán Þórarinsson og kona hans Ragnheiður Vigfúsdóttir Scheving. Maki 2 (5. september 1846): Ingileif Jónsdóttir Melsteð, fædd Bachmann (fædd 6. maí 1812, dáin 13. mars 1894) húsmóðir. Foreldrar: Jón Hallgrímsson Bachmann og kona hans Ragnhildur Björnsdóttir Bachmann. Börn Páls og Önnu Sigríðar: Páll (1812), Ragnheiður (1816), Ingibjörg (1817), Sigurður (1819), Margrét (1821), Guðrún (1821), Sigríður (1822), Björg (1823), Þórdís (1824), Guðrún (1825), Stefanía (1827), Jón (1829), Jakobína Jóhanna Sigríður (1831), Halldór (1832), Þórdís (1835). Sonur Páls og Ingileifar: Hallgrímur (1853).

    Stúdentspróf Bessastöðum 1809. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1815.

    Skrifari Stefáns Þórarinssonar amtmanns á Möðruvöllum 1809–1813. Sýslumaður í Suður-Múlasýslu 1815–1817, í Norður-Múlasýslu 1817–1835, sat á Ketilsstöðum á Völlum. Sýslumaður í Árnessýslu 1835–1849, sat í Hjálmholti. Settur jafnframt sýslumaður í Rangárvallasýslu 1836–1837. Gegndi embætti stiftamtmanns sumarið 1840. Skipaður 1849 amtmaður í vesturamtinu og gegndi því embætti til æviloka.

    Átti sæti í embættismannanefndinni 1839–1841. Skipaður 1845 í nefnd um landbúnaðar- og skattamál og 1859 í póstmálanefnd.

    Konungkjörinn alþingismaður 1847–1849. Þjóðfundarmaður 1851.

    Aðstoðarmaður Bardenfleths konungsfulltrúa á Alþingi 1845. Konungsfulltrúi á Alþingi 1849–1859, einnig skipaður konungsfulltrúi á þingi 1861, en andaðist fyrir þing.

    Forseti Þjóðfundarins 1851.

    Æviágripi síðast breytt 7. mars 2016.

    Áskriftir