Benedikt Sveinsson

Benedikt Sveinsson

Þingseta

Konungkjörinn alþingismaður 1861–1863 (varaþingmaður), alþingismaður Árnesinga 1864–1880, alþingismaður Norður-Múlasýslu 1881–1885, alþingismaður Eyfirðinga 1886–1892 og alþingismaður Norður-Þingeyinga 1892– 1899.

Forseti sameinaðs þings 1886, 1887, 1893 og 1894, forseti neðri deildar 1889, 1893 og 1895. Varaforseti neðri deildar 1891.

    Þingstörf

    Æviágrip

    Fæddur á Sandfelli í Öræfum 20. janúar 1826 (mun þó sjálfur hafa talið fæðingarár sitt 1827), dáinn 2. ágúst 1899. Foreldrar: Sveinn Benediktsson (fæddur 22. maí 1792, dáinn 5. september 1849) prestur þar og kona hans Kristín Jónsdóttir (fædd í apríl 1794, dáin 21. júlí 1879) húsmóðir. Maki (1859): Katrín Einarsdóttir (fædd 31. ágúst 1840, dáin 17. maí 1914) húsmóðir. Þau skildu. Foreldrar: Einar Stefánsson og kona hans Ragnheiður Benediktsdóttir. Börn: Ragnheiður (1860), Sveinn (1862), Einar (1864), Kristín (1867), Sveinlaug (1870), Ólafur Sveinar Haukur (1872).

    Stúdentspróf Lsk. 1852. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1858.

    Heimiliskennari á Reynistað 1850–1852. Skipaður 5. maí 1859 2. yfirdómari og dómsmálaritari við landsyfirréttinn, sat að Elliðavatni, vikið frá embætti 19. ágúst 1870. Sýslumaður í Þingeyjarsýslu 1874–1897, sat á Héðinshöfða. Fluttist til Reykjavíkur 1897, bjó að Vatnsenda frá 1898.

    Skipaður 1859 í nefnd til umsjónar í fjárkláðamálinu.

    Konungkjörinn alþingismaður 1861–1863 (varaþingmaður), alþingismaður Árnesinga 1864–1880, alþingismaður Norður-Múlasýslu 1881–1885, alþingismaður Eyfirðinga 1886–1892 og alþingismaður Norður-Þingeyinga 1892– 1899.

    Forseti sameinaðs þings 1886, 1887, 1893 og 1894, forseti neðri deildar 1889, 1893 og 1895. Varaforseti neðri deildar 1891.

    Greinar eftir hann birtust í tímaritum og blöðum, m. a. um stjórnarskipunarmál Íslands.

    Ritstjóri: Íslendingur (1860–1865).

    Æviágripi síðast breytt 4. apríl 2016.

    Áskriftir