Ágúst Ólafur Ágústsson

Ágúst Ólafur Ágústsson

Þingseta

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2003–2009 og 2017–2021 (Samfylkingin).

Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur í Hamborg 10. mars 1977. Foreldrar: Ágúst Einarsson (fæddur 11. janúar 1952) alþingismaður og prófessor, sonur Einars Sigurðssonar varaþingmanns, og Kolbrún Ingólfsdóttir (fædd 10. mars 1943) sagnfræðingur og meinatæknir. Maki: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (fædd 23. maí 1978) lögfræðingur. Þau skildu. Foreldrar: Gunnlaugur A. Jónsson og Guðrún Helga Brynleifsdóttir. Dætur: Elísabet Una (2002), Kristrún (2005), María Guðrún (2012).

Stúdentspróf MR 1997. Lögfræðipróf HÍ 2003. BA-próf í hagfræði HÍ 2003. MPA New York University 2011.

Stundaði ýmis störf sumrin 1998–2001, m.a. sem blaðamaður á Degi, hjá fjármálaráðuneytinu, ríkisskattstjóra og við nýsköpunarverkefni um reglur um persónuvernd í íslenskum og alþjóðlegum rétti fyrir Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Ráðgjafi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York 2011–2012. Stundakennari í meistaranámi stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands 2012–2016. Efnahags- og atvinnuráðgjafi forsætisráðherra 2012–2013. Fjármála- og hagfræðiráðgjafi hjá Capacent ehf. 2014–2016. Aðalmaður í bankaráði Seðlabanka Íslands 2013–2017. Aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 2015–2017.

Í stjórn Röskvu, samtaka félagshyggjufólks í HÍ, og stjórn ELSA-Ísland, samtaka evrópskra laganema á Íslandi, 1999–2000. Í framkvæmdastjórn Sambands ungra jafnaðarmanna 1999–2000. Í stjórn Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu, 2000–2004, þar af varaformaður 2002–2004. Varaformaður Ungra jafnaðarmanna 2000–2001, formaður 2001–2003. Í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík síðan 2001. Varaformaður Samfylkingarinnar 2005–2009. Formaður nefndar um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum 2007–2009. Formaður samstarfsnefndar um málefni aldraðra og framkvæmdasjóðs aldraðra 2007–2009. Formaður Evrópunefndar forsætisráðherra 2008–2009. Í stjórn Kjarnans 2016–2017. Ritstjóri skólablaðs MR (1995), hátíðartímarits ELSA-Ísland (1999), politik.is (2000–2001), Pólitíkur, blaðs ungra jafnaðarmanna (2002). Í ritstjórn Úlfljóts (1999–2000).

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2003–2009 og 2017–2021 (Samfylkingin).

Allsherjarnefnd 2003–2009, heilbrigðis- og trygginganefnd 2003–2006 og 2007, sérnefnd um stjórnarskrármál 2004–2007 og 2009 (fyrri), efnahags- og viðskiptanefnd 2006–2007, heilbrigðisnefnd 2007–2009, viðskiptanefnd 2007–2009 (formaður), fjárlaganefnd 2017–2021, efnahags- og viðskiptanefnd 2021.

Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2007–2009 og 2017–2021.

Æviágripi síðast breytt 26. janúar 2022.

Áskriftir