Gunnar Bragi Sveinsson

Gunnar Bragi Sveinsson

Þingseta

Alþingismaður Norðvesturkjördæmis 2009–2017 (Framsóknarflokkur) og Suðvesturkjördæmis 2017–2021 (Miðflokkurinn).

Utanríkisráðherra 2013–2016, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra 2016–2017.

Formaður þingflokks Framsóknarmanna 2009–2013. Formaður þingflokks Miðflokksins 2017–2021.

Æviágrip

Fæddur á Sauðárkróki 9. júní 1968. Foreldrar: Sveinn Margeir Friðvinsson (fæddur 19. september 1938, dáinn 25. júní 2017) og Ingibjörg Gunnhildur Jósafatsdóttir (fædd 13. maí 1940). Maki 1: Elva Björk Guðmundsdóttir (fædd 1. apríl 1969) húsmóðir. Þau skildu. Foreldrar: Guðmundur Frímannsson og Sigurlaug Guðmundsdóttir. Synir: Sveinn Rúnar (1993), Ingi Sigþór (2000), Róbert Smári (2000). Stjúpsynir, synir Elvu Bjarkar: Arnar Þór Sigurðsson (1988), Frímann Viktor Sigurðsson (1989). Maki 2: Sunna Gunnars Marteinsdóttir (fædd 25. júní 1984) stjórnmálafulltrúi. Foreldrar: Helga Björnsdóttir og Marteinn Magnússon. Stjúpdóttir, dóttir Sunnu: Guðrún Margrét Sigurbjörnsdóttir (2011).

Stúdentspróf FNV á Sauðárkróki 1989. Nám í atvinnulífsfélagsfræði við HÍ.

Verslunarstjóri Ábæjar 1989–1990 og 1991–1995. Verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni 1989–1991. Ritstjóri héraðsfréttablaðsins Einherja 1991–1992. Sölu- og verslunarstjóri hjá Skeljungi hf. 1996–1997. Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997–1999. Markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999. Starfaði á verslunarsviði Kaupfélags Skagfirðinga 2000–2002. Framkvæmdastjóri Ábæjar 2002–2003. Framkvæmdastjóri Ábæjar-veitinga ehf. 2004–2007. Utanríkisráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra 7. apríl 2016 til 11. janúar 2017. 1. varaformaður Miðflokksins síðan apríl 2018.

Í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar og í stjórn Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands, 1998–2000. Formaður stjórnar varasjóðs viðbótarlána 1998–2002. Formaður Félags ungra Framsóknarmanna í Skagafirði. Varaformaður kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Annar varaforseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2002–2006, varaforseti 2006–2009. Formaður byggðaráðs Skagafjarðar 2006–2009. Varaformaður atvinnu- og ferðamálanefndar Skagafjarðar 2006–2009. Formaður Gagnaveitu Skagafjarðar 2006–2009. Formaður stjórnar Norðurár bs., sorpsamlags, 2006–2009. Formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2006–2009. Í stjórn Hátækniseturs Íslands ses. 2007–2009. Í menningarráði Norðurlands vestra 2008–2009.

Alþingismaður Norðvesturkjördæmis 2009–2017 (Framsóknarflokkur) og Suðvesturkjördæmis 2017–2021 (Miðflokkurinn).

Utanríkisráðherra 2013–2016, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra 2016–2017.

Formaður þingflokks Framsóknarmanna 2009–2013. Formaður þingflokks Miðflokksins 2017–2021.

Iðnaðarnefnd 2009–2011, þingskapanefnd 2011–2013, utanríkismálanefnd 2011–2013 og 2017–2021, umhverfis- og samgöngunefnd 2017.

Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu 2017 (formaður 2017) og 2017–2021 (formaður 2017–2021), þingmannanefnd Íslands og ESB 2018–2021.

Æviágripi síðast breytt 26. janúar 2022.

Áskriftir