fimmtudaginn 2. október 2008
kl. 7.50 síðdegis.
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Samfylkingin, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ásta Möller, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Illugi Gunnarsson, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 4. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Jakobsdóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Atli Gíslason, 7. þingmaður Suðurkjördæmis.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, í annarri og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra í þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Guðni Ágústsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Sverrisdóttir, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Birkir J. Jónsson, 6. þingmaður Norðausturkjördæmis.
Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þingmaður Norðvesturkjördæmis, Jón Magnússon, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð en í þriðju umferð Grétar Mar Jónsson, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.
[22:05]
Útbýting þingskjala