[←] [→]

89. fundur

fimmtudaginn 26. febrúar 2009

kl. 10.30 árdegis.

tilkynning um úrsögn úr þingflokki.

Forseti las bréf frá Kristni H. Gunnarssyni þar sem hann tilkynnti úrsögn sína úr þingflokki Frjálslynda flokksins.


[10:35]
Útbýting þingskjala

óundirbúinn fyrirspurnatími.

Icesave-nefndin.

[10:35]
Horfa

Spyrjandi var Pétur H. Blöndal.


staða námsmanna.

[10:42]
Horfa

Spyrjandi var Birkir Jón Jónsson.


sala Morgunblaðsins.

[10:48]
Horfa

Spyrjandi var Karl V. Matthíasson.


stjórn bankakerfisins.

[10:54]
Horfa

Spyrjandi var Ármann Kr. Ólafsson.


sementsverksmiðjan á Akranesi.

[11:02]
Horfa

Spyrjandi var Jón Bjarnason.



[11:09]
Útbýting þingskjala

afbrigði um dagskrármál.


kosning varamanns í landskjörstjórn í stað Eysteins Eyjólfssonar til fyrsta þings eftir næstu almennar alþingiskosningar, skv. 12. gr. laga nr. 24 16. maí 2000, um kosningar til Alþingis.

Fram kom ein tilnefning og þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að kosinn væri án atkvæðagreiðslu:

 

Sigurjón Sveinsson laganemi.


Seðlabanki Íslands, 3. umræða.

stjfrv., 280. mál (skipulag yfirstjórnar og peningastefnunefnd). — Þskj. 574, brtt. 591 og 592.


[Fundarhlé — 13:00]

[14:50]
Útbýting þingskjala

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


[Fundarhlé — 17:08]

Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 605).


tekjustofnar sveitarfélaga og gatnagerðargjald, 3. umræða.

stjfrv., 185. mál (lögveðsréttur fasteignaskatts og endurgreiðsla gatnagerðargjalds). — Þskj. 228, frhnál. 586.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


uppbygging og rekstur fráveitna, 3. umræða.

stjfrv., 187. mál (heildarlög). — Þskj. 590.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis, 2. umræða.

frv. iðnn., 317. mál (umsagnarréttur sveitarfélaga). — Þskj. 549.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


loftferðir, 2. umræða.

stjfrv., 196. mál (flugvernd, gjaldtaka, EES-reglur o.fl.). — Þskj. 243, nál. 581.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


kosningar til Alþingis, 1. umræða.

frv. allshn., 328. mál (viðmiðunardagur umsóknar um kosningarrétt). — Þskj. 564.

Umræðu lokið.

Frumvarpið gengur til 2. umræðu .


þingsköp Alþingis, 1. umræða.

frv. StB o.fl., 315. mál (skipulag fastanefnda). — Þskj. 545.

[18:05]
Útbýting þingskjala

Umræðu lokið.

Frumvarpið gengur til 2. umræðu og allshn.


Út af dagskrá voru tekin 10.–13. mál.

Fundi slitið kl. 19:21.