142. löggjafarþing — 2. fundur,  10. júní 2013.

Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, júní 2013:

Samkvæmt 1. mgr. 47. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum, skal fylgja stefnuræðu forsætisráðherra yfirlit um þau mál sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram á þinginu. Yfirlit fyrir 142. löggjafarþing fer hér á eftir. Flutt kunna að verða fleiri frumvörp en getið er og atvik geta hindrað flutning einstakra frumvarpa. Jafnframt eru taldar upp fyrirhugaðar tillögur til þingsályktana.


Forsætisráðherra:
  1. Frumvarp til laga um breytingar á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007.
  2. Tillaga til þingsályktunar um aðgerðir vegna skuldavanda íslenskra heimila.

Félags- og húsnæðismálaráðherra:
  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum.

Fjármála- og efnahagsráðherra:
  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.
  2. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum skattalögum (lögum nr. 129/2009, um umhverfis- og auðlindaskatta, lögum nr. 29/1993, um vörugjöld af ökutækjum, eldsneyti o.fl., lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald, lög nr. 90/2003, um tekjuskatt o.fl.).
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.

Innanríkisráðherra:
  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, með síðari breytingum (flýtimeðferð fyrir dómstólum).

Mennta- og menningarmálaráðherra:
  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013 (val stjórnarmanna).

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (framlenging bráðabirgðaákvæða).
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
  3. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 74/2012, um veiðigjöld.